Innlent

Meta þörf á að endurskoða Bankasýsluna

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna og formaður viðskiptanefndar Alþingis. Mynd/GVA
Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna og formaður viðskiptanefndar Alþingis. Mynd/GVA
Viðskiptanefnd Alþingis kemur saman á morgun til að ræða eigandastefnu ríkisins og Bankasýslu ríkisins.

Óskað hefur verið eftir því við Mats Josefsson, efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar, að hann sitji fundinn verði hann á landinu, en sitji annars fyrir svörum í símaviðtali.

„Við báðum hann að meta hvort það væri þörf á því að endurskoða hvort þörfin fyrir Bankasýsluna hafi minnkað eða horfið vegna samkomulagsins sem gert var við skilanefndir bankanna," segir Álfheiður Ingadóttir, formaður nefndarinnar.

Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að kröfuhafar bankanna geti eignast hlut ríkisins í þeim.

Álfheiður segir Josefsson hafa svarað fyrirspurn nefndarinnar skriflega á þá leið að Bankasýslan haldi gildi sínu áfram. Forsendur séu óbreyttar og erlendu kröfuhafarnir eigi enn eftir að fallast á samkomulagið við skilanefndirnar.

Á fundinum verður svo bankasýslan einnig rædd í ljósi eigandastefnunnar sem nú hefur verið lögð fram.

Aðspurð hvort hún eigi von á breytingum á frumvarpinu um bankasýslunna í kjölfar fundarins segir Álfheiður:

„Ég á ekki von á því, en við erum bara að fara yfir málið á milli annarar og þriðju umræðu í þinginu og það kann vel að vera að eitthvað komi upp á - það á aldrei að segja aldrei."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×