Innlent

Tveir menn handteknir vegna ráns í 11-11

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið tvo menn sem grunur leikur á að séu þeir sem réðust inn í 11-11 verslun í Skipholti í gær. Mennirnir ógnuðu starfsmönnum með hnífum og höfðu á brott með sér eitthvað þýfi. Ræningjarnir komust svo á brott á bláum fólksbíl.

Grímur Grímsson hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að mennirnir hafi verið handteknir í morgun. Ekki er búið að yfirheyra þá, en Grímur segir að það verði gert þegar líður á morguninn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×