Frönsk umræða: Stökkvið í sjóinn - Neyðum Ísland til að borga 4. ágúst 2009 20:25 Eva Joly. Athugasemdir í frönskum miðlum eru misjafnar, og fæstar okkur í hag.
Blaðaviðtal við Evu Joly sem birtist um helgina í nokkrum löndum á sama tíma hefur vakið athygli. Á vefsíðu Le Monde má finna viðtalið við Evu en þar má einnig finna sex blaðsíður af athugasemdum Frakka vegna greinarinnar og stöðu Íslands í alþjóðlegu tilliti. Meðal athugasemda sem finna má er einn þeirra sem líkir bankahruninu hér á landi við svikamyllu Bernards Maddofs sem fékk mörg hundruð ára fangelsi í Bandaríkjunum fyrir risastóra svikamyllu í viðskiptalífinu. Í athugasemdinni segir ennfremur að bresk og hollensk yfirvöld hefðu átt að vara landa sína við hættum íslenska bankakerfisins. Annar Frakkinn segir viðtalið við Evu Joly vera frábært og setja málið allt í samhengi. Hann bendir á að Íslendingar hafi fengið grimma útreið í frönskum fjölmiðlum. Og það eru fleiri sem telja Bretana hina illu í málinu. Einn kallar Bretland svindlararíki og finnst Ísland greiða allt of háa upphæð vegna Icesave reikninganna. Hann er sammála allnokkrum öflum hér á landi; hann leggur til að Ísland leiti réttar síns fyrir dómstólum. Arnaud skrifar athugasemd þar sem hann telur að Frakkland þurfi að draga lærdóm af bankahruninu hér á landi. Sjálfur telur hann efnahagslegt hrun blasa einnig við Frökkum. Charles Hirlimann segist dást af hjálparfýsi Evu í norðri og vonar að Íslendingar muni hlýða góðum ráðum hennar. Hann óttast þó að við séum of óheiðarleg til þess að fara eftir hennar ráleggingum. Alain D. veltir því fyrir sér hvert sé raunverulegt fórnalamb í málinu. Hann segir að bankamenn á Íslandi hafi vitað af óeðlilegum lánagreiðslum. Þeir hafi þekkt áhættuna en spillingin hafi verið orðin hefðbundin eins og hann orðar það sjálfur. Hann spyr hvort Íslenskir bankamenn hafi ekki einmitt borið alla ábyrgð á hruninu og hvort vænta megi framhaldsgreinar um málið frá Evu. Frakkinn Michel segir að Íslendingar muni aldrei geta borgað skuldir sínar. Þær séu of háar. Michel trúir því að þær muni falla á skattgreiðendur innan Evrópusambandsins þegar Ísland kemst þangað inn líkt og hefur viðgengist hingað til að mati Michels og vísar hann í fátæk ríki innan sambandsins. Claude S leggur ansi frumlega hugmynd til. Hann vill að Ísland verði hernumið og neytt til þess að borga skuldir sínar með öllum tiltækum ráðum. Jacques M. er þó heldur uppbyggilegri heldur en Claude. Hann leggur til að þeir 300 þúsund manns sem hér búa stökkvi í sjóinn. En þar sem sjórinn er heldur kaldur að mati Jacques, þá sé betri leið að þeir ættleiði sig til hinna norrænu landa og yfirgefi eyjuna Ísland með öllu. - Hljóðlega þó, segir Jacques sem hugsar þar um velferð okkar en ekki lánadrottnara.
Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Innlent Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Erlent Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Fleiri fréttir Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Sjá meira