Hiti á aðalfundi Byrs - erfiðasta ár í sögu sjóðsins Andri Ólafsson skrifar 13. maí 2009 18:31
Rúmlega 700 manns sitja aðalfund sparisjóðsins Byr sem hófst klukkan fjögur og stendur enn yfir. Þetta er átakafundur enda tapaði sparisjóðurinn 29 milljörðum á síðasta ári. Tveir listar eru þar að auki í framboði til stjórnar. Fulltrúar listanna tveggja sem eru í framboði til stjórnar Byrs hafa verið duglegir að hringja í þá 1500 stofnfjáreigendur sem hafa atkvæðisrétt á aðalfundinum sem fram fer á Hilton-Nordica hótelinu. A listinn er leiddur af Sveini Margeirssyni og Herði Arnarssyni en hann er talinn fulltrúi grasrótarinnar í stofnfjárhópnum en B listinn sem leiddur er af Jóni KR. Sólnes er talinn fulltrúi þeirra sem farið hafa með völdin í Byr. Alls mættu eigendur 78% stofnfjárs sem er í Byr á fundinn. Hann hófst með skýrslu stjórnarformannsins og sparisjóðsstjórans. Stemningin var frekar þung enda ársreikningurinn svartur, 29 milljarða tap og erfiðasta ár í sögu sparisjóðsins að baki. Eiginfjárhlutfallið rétt lafir fyrir ofan löglegt lágmark og sparisjóðurinn á undanþágum frá lánadrottnum. Stofnfjáreigendur voru ekki sáttir. Einn þeirra steig í pontu og sagði það sorglegt að sparisjóðsstjórinn hefði tapað einum milljarði fyrir hverja milljón sem hann þáði í laun á síðasta ári. Annar spurði hvernig á því stæði að 10 einstaklingar væru ábyrgir fyrir 75% af öllum afskrifuðum útlánum sparisjóðsins. Það gera um 18 milljarða króna. Hann vildi jafnframt fá að vita hvaða einstaklingar þetta væru. En fékk engin svör frá stjórninni sem bar við bankaleynd.. Fundurinn stendur enn yfir og brátt verður gegnið til stjórnarkjörs en úrslit munu ekki liggja fyrir fyrr en síðar í kvöld.
Mest lesið Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira