SA telur hugmyndir um kolefnisskatt vanhugsaðar 2. júlí 2009 10:53
Samtök atvinnulífsins (SA) segja að hugmyndir fjármálaráðuneytisins um að leggja á sérstakan kolefnisskatt séu vanhugsaðar og munu hafa lítil sem engin áhrif á útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá íslenskum fyrirtækjum. Skattheimta sem þessi verður aðeins til þess draga úr samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs auk þess að minnka líkur á að erlend fjárfesting verði hér að veruleika á næstu misserum. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins. Þar segir m.a. að verði skatturinn lagður á getur orkukostnaður útgerðarfyrirtækja hækkað um allt að þriðjung og útsöluverð á bensíni hækkað um 23 krónur hver lítri og dísellítrinn um 25 krónur. Þetta yrði til að samkeppnisstaða annarra útflutningsgreina myndi versna. Þannig getur gjaldið sem fjármálaráðuneytið fjallar um hækkað orkukostnað útgerðarinnar um 27-30%. Fjármálaráðuneytið telur eðlilegt að erlend skip og erlendar flugvélar verði undanþegnar gjaldinu en að sjálfsögðu verður það til þess að hér á landi verða hvorki skráð skip né flugvélar. Að leggja skatt á hráefnisnotkun í orkufrekum iðnaði eins og fjármálaráðuneytið hefur sett fram hugmyndir um þekkist ekki í helstu samkeppnislöndum og yrði einungis til að setja í uppnám þau áform sem kunna að vera uppi um frekari fjárfestingar á þessu sviði hér á landi. Það er að sjálfsögðu í fullkominni andstöðu við nýgerðan stöðugleikasáttmála ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins um að greiða götu stórfjárfestinga til að fjölga störfum í atvinnulífinu. Viðbúið er að hugmyndir fjármálaráðuneytisins muni hafa áhrif á fjárfesta þegar kemur að því að taka ákvörðun um hvort þeir muni fjárfesta hér á landi eða ekki.
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Rúmur milljarður til Viðskiptaráðs og SA á fimm árum Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Sjá meira