Viðskipti innlent

Frystigeymslufyrirtæki Eimskips í Hollandi er gjaldþrota

Eimskip mun hætta rekstri á frystigeymslufyrirtækinu Daalimpex í Hollandi. Samningar um sölu á fyrirtækinu voru á lokastigi en snuðra hljóp á þráðinn á síðustu metrunum og gekk því salan ekki eftir.

Í tilkynningu um málið segir að þetta þýði að fyrirtækið verður tekið til gjaldþrotaskipta í ljósi þess að Eimskip sér ekki ávinning í því að styðja áfram við félagið fjárhagslega.

Mun þessi niðurstaða hafa óveruleg áhrif á viðskiptavini Eimskip og mun félagið bjóða áfram fjölþætta þjónustu við sjávarútvegsfyrirtæki í gegnum samstarfsaðila í Hollandi.

Fjárhagsleg áhrif á Eimskip nú verða óveruleg í ljósi þess að félagið hafði að fullu afskrifað þessa starfsemi á fjórða ársfjórðungi reikningsársins 2008.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×