Eignirnar duga fyrir einum sjötta skulda 9. febrúar 2009 07:30 Starfandi stjórnarformaður Baugs situr í stjórnum þeirra félaga sem skilanefnd Landsbankans gekk að veðum í í síðustu viku til að forða þeim frá frekari slysum. „
Ég er með tuttugu þúsund pund á ári fyrir stjórnarsetu í Iceland en ekki með aðgang að bíl og þyrlu. Annað er þvæla," segir Jón Ásgeir Jóhannesson, starfandi stjórnarformaður Baugs. Hann segir fréttir breskra fjölmiðla frá í gær um sérstök fríðindi vegna stjórnarsetu í fyrirtækjum sem hann sitji í ásamt Gunnari Sigurðssyni, forstjóra Baugs, fráleitar. Jón Ásgeir er stjórnarformaður matvörukeðjunnar Iceland og stjórnarmaður í House of Fraser, leikfangaversluninni Hamleys og skartgripakeðjunni Aurum, sem skilanefnd Landsbankans gekk að veði í í síðustu viku. Fyrir stjórnarformennskuna fær hann tuttugu þúsund pund, jafnvirði 3,3 milljóna króna, á ári. Fríðindi eru engin. „Ég hef ekki verið beðinn um að hætta í stjórnum þeirra," segir hann og vísar til tilkynningar skilanefndar Landsbankans frá í síðustu viku að Baugur hafi skuldbundið sig til að vinna með bankanum og hámarka virði eignanna. „Við eigum að forða þeim frá frekari slysum," segir Jón Ásgeir. Að öðru leyti vísaði hann til þess að tilsjónarmenn PricewaterhouseCoopers ráði stjórnarsetum hans í félögum tengdum BG Holding, dótturfélags Baugs í Bretlandi, í dag. Auk aðgerða skilanefndar Landsbankans tók Straumur yfir eignir Baugs í Danmörku á fimmtudag. Það eru verslanirnar Magasin du Nord, Illum og Day Mikkelsen. Samkvæmt breska dagblaðinu Observers er Kaupþing að íhuga að taka fataverslanakeðjuna Mosaic Fashions upp í skuldir, sem nema 400 milljörðum króna. Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings, segir svo ekki vera. Unnið sé með félaginu að endurskipulagningu skulda. Breska dagblaðið Guardian hafði í gær upp úr skýrslu PricewaterhouseCoopers, sem unnin var fyrir skilanefnd Landsbankans, að 150 milljónir punda, jafnvirði 25 milljarða króna, fáist fyrir eignir Baugs yrðu þær seldar í dag. Þetta jafngildir um einum sjöunda af skuldum Baugs gagnvart íslensku bönkunum sem nema um einum milljarði punda. Lánadrottnar félagsins hafa lýst því yfir að eignir verði ekki seldar í því árferði sem nú ríki á fjármálamörkuðum enda fengist lítið fyrir þær. Jón Ásgeir segir mikilvægt að niðurstaða fáist í greiðslustöðvun Baugs í Bretlandi svo hægt verði að halda áfram þeirri vinnu sem lagt hafi verið upp með og skýra stöðuna. Öllu starfsfólki Baugs hér á landi var sagt upp fyrir rúmri viku og tæpum helmingi í höfuðstöðvunum í Lundúnum í Bretlandi. Sextán starfa þar nú og hafa öll leitað fyrir sér á öðrum vettvangi. „Óvissan er algjör," segir Jón Ásgeir. Hann segir ljóst að saga Baugs sé öll þótt hremmingarnar ytra ættu ekki að hafa áhrif á félög tengd Gaumi, félagi fjölskyldu hans hér. Sjálfur viti hann ekki hvað bíði sín. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira