Gjaldeyristekjur af ferðamönnum vel yfir 100 milljarðar 27. maí 2009 14:56
Greining Kaupþings telur líklegt að tekjur af erlendum ferðamönnum fari vel yfir 100 milljarða kr. á árinu samanborið við um 73 milljarða kr. á árinu 2008. Útlit er fyrir að ferðaþjónusta skili verulegum tekjum í kassann á árinu enda eykst meðaleyðsla erlendra ferðamanna umtalsvert þegar gengi krónunnar er svo lágt. Til að setja þessa upphæð í samhengi má geta þess að útflutningstekjur sjávarútvegsins námu um 170 milljörðum kr. 2008, samkvæmt Hagstofunni. Greining segir í umfjöllun sinni um þjónustuviðskiptin að þróunin upp á síðkastið hefur verið jákvæð og gefur fyrirheit um að verulegs afgangs sé að vænta á öðrum og þriðja fjórðungi þegar heimsóknir erlendra ferðamanna eru í hámarki. Sterkar vísbendingar eru um mikinn samdrátt í ferðalögum Íslendinga til útlanda eins og sést á tölum fyrir fyrsta ársfjórðung ársins þar sem samdrátturinn var 50% á milli ára. Hinsvegar hefur komið þægilega á óvart hve mikil fjölgun erlendra ferðamanna hefur verið á síðustu mánuðum. Þrátt fyrir heimskreppu og bölmóðssýki drógust ferðalög útlendinga hingað til lands saman um aðeins 6% á fyrsta ársfjórðungi. Erlendum ferðamönnum fjölgaði hinsvegar um 6,5% milli ára í apríl samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu. Greiningin segir að haldi erlendir ferðamenn áfram að sækja landið heim í jafn ríkum mæli megi ætla að afgangur á næstu tveimur ársfjórðungum muni nema um 25-30 milljörðum kr. í formi gjaldeyristekna. Eins og þróunin á ferðamannastraumi til og frá landinu hefur verið frá bankahruni má ætla að um 150 þúsund erlendir ferðamenn ferðist til landsins umfram þá Íslendinga sem halda utan á þriðja ársfjórðungi. „Verði afgangur á þjónustuviðskiptum jafn mikill og við erum að gera ráð fyrir og ef vöruskiptajöfnuðurinn heldur áfram að batna gætu því loksins skapast raunhæfar forsendur fyrir styrkingu krónunnar þar sem þjóðarbúið ætti þá loksins (með einfölduðum hætti) að vera að afla meir í viðskiptum sínum við útlönd en sem nemur útgjöldum til erlendra aðila - í það minnsta á þriðja ársfjórðungi," segir í Markaðspunktum greiningarinnar.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira