HS Orka skilaði 612 milljóna hagnaði fyrrihluta ársins 31. ágúst 2009 15:49
Heildarafkoman hjá HS Orku á fyrstu sex mánuðum ársins var jákvæð um 611,6 milljónir kr. Eiginfjárhlutfall hækkaði úr 16,3% í 18,3%. Í tilkynningu segir að hagnaður félagsins á tímabilinu nam 184 milljónir kr., en var á sama tímabili árið áður 979 milljónir kr. Þegar tekið er tillit til tekna og gjalda sem færð eru á eigið fé er heildarhagnaður tímabilsins 612 millj. kr. samanborið við 8,6 milljarða kr. á sama tímabili árið áður. Lækkun heildarhagnaðar skýrist af því að á árinu 2008 voru rekstrarfjármunir félagsins endurmetnir til gangvirðis til samræmis við heimildir. Hitaveitu Suðurnesja hf. var á árinu 2008 skipt í tvö félög HS Orku hf. og HS Veitur hf. sem tók yfir einkaleyfisstarfsemi Hitaveitu Suðurnesja hf. Starfsemi sem nú tilheyrir HS Veitum hf. er sett fram sem aflögð starfsemi í samanburðarfjárhæðum í árshlutareikningi félagsins.Árshlutareikningurinn sýnir fyrsta rekstrartímabil HS Orku hf. í núverandi mynd. Samkvæmt rekstrarreikningi námu rekstrartekjur HS Orku hf. á tímabilinu tæpum 2,9 milljörðum kr., en voru tæpir 2,7 milljarðar kr. á sama tímabili árið áður. Hækkun rekstrartekna nemur 7% eða 195 milljónum kr. Hækkun tekna er að mestum hluta vegna þjónustutekna vegna veittrar þjónustu til HS Veitna hf., en félögin hafa gert þjónustusamning sín á milli þar að lútandi. Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir HS Orku hf. þann 30. júní 2009 bókfærðar á 35,7 milljarðar kr. Eignir lækkuðu um 764 milljónir kr. frá ársbyrjun. Skuldir HS Orku hf. nema 29,2 milljörðum kr. samkvæmt efnahagsreikningi, þar af eru skammtímaskuldir 5,8 milljarðar kr.
Mest lesið „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira