Þór Saari segir eignir lífeyrissjóða ganga upp í Icesave 16. júlí 2009 12:58
Þór Saari þingmaður Borgarahreyfingarinnar segir að Icesave samningarnir muni að óbreyttu valda þjóðinni óbætanlegu tjóni vegna þeirrar skuldastöðu sem hún kemst í. Hann segir að lífeyrissjóðirnir séu teknir sem eign á móti skuldinni.Í umsögn Seðlabankans um Icesave samningana og getu þjóðarbúsins til að takast á við skuldbindingarnar gerir bankinn ráð fyrir að búið verði að selja allar eignir Landsbankans í lok árs 2015. Þá er gert ráð fyrir að 75% af eignunum innheimtist upp í Icesave skuldina. Samkvæmt þessu verði Icesave skuldin samtals 340 milljarðar árið 2015.Seðlabankinn telur að þjóðarbúið verði fyllilega fært um að standa undir Icesave samningunum. Með skynsamri hagstjórn og talsverðum afgangi af vöruskiptum við útlönd á tímabilinu 2009-2018 aukist geta þjóðarbúsins til að greiða Icesave enn frekar.Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, er ekki sammála því mati. Hann sagðist á Alþingi í morgun telja að Icesave málið sé eitt það eitraðasta sem hafi sést á Alþingi. Þór segist einnig telja að Icesave muni að óbreyttu valda þjóðinni óbætanlegu tjóni vegna þeirrar skuldastöðu sem hún kemst í.Þór segir að lífeyrissjóðirnir fari. Þegar sé gert ráð fyrir þeim sem eign í tölfræðinni þegar kemur að eigum þjóðarbúsins, svo kröfuhafar geti séð hvað sé til. Hann segir að auðlindirnar fari næst, fyrst með Landsvirkjun.Þór segir að ekki verði til fjármunir í samgöngukerfið, menntakerfið, heilbrigðiskerfið né velferðarkerfið.Þá tjáði hann sig um útreikninga Fjármálaráðuneytisins og Seðlabankans. Hann segir að Fjármálaráðuneytið hafi gengið fram með einkennilegar hagvaxtaspár sem virðist í raun ekki eiga sér stoð í raunveruleikanum. Þór segir að svo virðist sem menn hafi einfaldlega reiknað sig til ásættanlegrar niðurstöðu. "Eins hafa gögn og heimsóknir Seðlabankans vakið upp fleiri spurningar en þær hafa svarað," sagði Þór Saari á Alþingi í morgun.
Mest lesið Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Sjá meira