Fréttaskýring: Krónunni er ekki viðbjargandi Friðrik Indriðason skrifar: skrifar 19. janúar 2009 11:24
Allar hugmyndir manna um að hægt sé að bjarga krónunni við núverandi aðstæður eru draumsýnir. Þróunin frá hruni bankanna sýnir að krónunni er ekki viðbjargandi og því fyrr sem ráðamenn gera sér grein fyrir þessu því betra. Greining Glitnis hefur í tvígang í þessum mánuði lýst yfir áhyggjum af því að mikill viðsnúningur á vöruskiptum landsins við útlönd til hins betra hefur ekki styrkt gengi krónunnar. Þvert á móti heldur hún áfram að veikjast. Skýringin á þessu eru einföld. Tvennt á að styrkja gengi krónunnar við þessar aðstæður. Tekjur af sjávarútvegi og tekjur af álframleiðslu. Hvorugt gerir það af augljósum ástæðum. Hvað sjávarútveginn varðar fer núna nær hver einasta króna sem fæst fyrir afurðir á erlendum mörkuðum í það að greiða af skuldum greinarinnar. Þær eru taldar liggja á bilinu 400 til 500 milljarðar kr., að stórum hluta í erlendri mynt. Flest allur kvóti landsmanna er veðsettur upp úr þakinu og er í raun komin í eign banka og fjármálastofnanna landsins og erlendis eins og greint hefur verið frá í fréttum. Það er því forgangsatriði fyrir útveginn að nota erlendar tekjur sínar til að greiða af þessum lánum. Á meðan kemur lítið sem ekkert í sameiginlegan kassa landsmanna. Og hvað álframleiðsluna varðar eru tekjurnar af henni einkum í formi orkukaupa. Gjaldeyrinn sem aflast þannig fer að stærstum hluta til að greiða niður miklar skuldir Landsvirkjunar. Á meðan kemur lítið sem ekkert í sameiginlegan kassa landsmanna. Það vakti athygli greinarhöfundar að í Silfri Egils í gærdag kom fram í máli hagfræðingsins Annie Sibert að eina lausn Íslendinga í gjaldmiðilsmálum væri innganga í Evrópusambandið. Raunar taldi hún nauðsynlegt að Íslendingar kæmu sér strax í myntsamband við Noreg á meðan beðið væri eftir því að ESB samþykkti aðild Íslands. Lausnin er því einföld. Annað hvort Gamli sáttmáli eða ESB. Ísland þarf semsagt að segja sig til sveitar í Noregi líkt og gert var árið 1262 með Gamla sáttmála. Á móti myndu Norðmenn lofa því að senda hingað til lands sex fraktskip á hverju ári með vörur og vistir. Og þegar við værum að lokum komin inn í ESB myndi evran taka við á ónýtri krónunni og þá fyrst getur endurreisn íslensks efnahags hafist að nýju.
Mest lesið Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Scobie hjónin: „Við eigum frekar að njóta meira og vera þakklát fyrir allt sem við höfum“ Atvinnulíf Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Elskar kaffi að ítölskum sið og línulega dagskrá Atvinnulíf Íslenska þjóðin getur ekki átt fiskveiðiheimildir að mati Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Sjá meira