Sakar gömlu bankana um blekkingar í gjaldmiðlasamningum 9. janúar 2009 15:41
Hvöttu eigendur stóru viðskiptabankanna starfsfólk sitt vísvitandi til þess að selja útflutningsatvinnuvegunum og lífeyrissjóðum í landinu gjaldeyrisskiptasamninga, þar sem staða var tekin með með krónunni? Unnu þeir svo sjálfir að því að fella gengi krónunnar með verulegum hagnaði og vógu þannig að sjávarútvegsfyrirtækjum, lífeyrissjóðunum og íslensku þjóðinni um leið? Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og varaformaður LÍÚ, velti þessum spurningum og fleiri upp í ræðu á fundi auðlindahóps Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins í Valhöll í gær en greint er frá málinu á vefsíðu LÍÚ. Hann sagði það víðtæka skoðun þeirra sem gerðu þessa samninga við bankana, sem allir urðu fjármálakreppunni að bráð, að þar hefði verið „maðkur í mysunni." Eiríkur sagði ennfremur: „Það hefur verið rætt mikið um gjaldmiðlaskiptasamninga og afleiður undanfarið. Þeir sem hafa gert slíka samninga við gömlu bankana standa nú frammi fyrir því að möguleikar bankanna til að standa við samningana urðu að engu þegar þeir féllu í valinn. Sú skoðun er uppi meðal margra að þar með eigi þessir samningar að falla niður." Eiríkur sagði grunsemdir þeirra, sem hefðu efast um heilindi bankanna loks hafa fengið byr undir báða vængi „þegar þeir lásu frétt um að Kjalar hf. sem sagður er hafa átt 10% í Kaupþingi, geri kröfur um að fá stöður sínar gegn krónunni greiddar út hjá Kaupþingi. Í dag kemur sambærileg frétt um Exista, annan eigenda í Kaupþingi. Er hægt að kalla þessi vinnubrögð „svikamyllu?" spurði Eiríkur undir lok ræðu sinnar í gær.
Mest lesið Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Scobie hjónin: „Við eigum frekar að njóta meira og vera þakklát fyrir allt sem við höfum“ Atvinnulíf Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Sjá meira