Óvíst hvort stjórnvöld nái að uppfylla kröfur AGS í tíma 9. janúar 2009 12:10
Alls óvíst er hvort íslensk stjórnvöld nái að uppfylla þær kröfur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) sem eiga að vera komnar til framkvæmda í næsta mánuði. Þá fer fram fyrsta endurskoðun AGS en hún er grundvöllur fyrir áframhaldandi aðstoð sjóðsins. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn setur þau skilyrði að endurfjármögnun bankanna eigi að vera að fullu lokið, en í því felst að búið verði að meta allar skuldir og eignir bankanna og setja saman nýjan efnahagsreikning nýju bankanna. Einnig skuli mati á orsökum og afleiðingum bankahrunsins, sem unnið er af hlutlausri nefnd, vera lokið og skýrsla um helstu niðurstöður matsins vera komin til stjórnvalda og almennings. Auk þessarar endurskoðunar á FME að vera búið að fara yfir fimm ára viðskiptaáætlanir nýju bankanna og samþykkja þær. Óljóst er á þessari stundu hvort þessari vinnu verður lokið á tilsettum tíma í febrúar. Eins og kunnugt er var lánveiting AGS upp á 2,1 milljarða dollara ýmsum skilyrðum háð. Skömmu eftir að lánveitingin var samþykkt í nóvember var fyrsti hluti lánsins greiddur út, alls 827 milljónir dollara. Afgangur lánsins skal svo greiddur út í átta jöfnum greiðslum sem hver um sig nemur 155 milljónum dollar. Greiðslurnar koma í kjölfar ársfjórðungslegrar endurskoðunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þar sem m.a. verður metið hvernig gengur að framfylgja efnahagsáætlun þeirri sem stjórnvöld unnu að í samstarfi við sjóðinn og hvernig hafi tekist til að framfylgja áætluninni.
Mest lesið Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Scobie hjónin: „Við eigum frekar að njóta meira og vera þakklát fyrir allt sem við höfum“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Sjá meira