Stakk ekki upp á kaupendum á BT og Skífunni 9. janúar 2009 20:14 Tryggvi Jónsson.
Ég átti hvorki hugmyndina að því að koma Senu og Högum að samningaborðinu né kom ég að fjármögnun eða kaupsamningum í þessum viðskiptum, segir Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs, í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum nú fyrir stundu.RÚV fullyrðir um afskipti Tryggva af sölunni Í kvöldfréttum RÚV var fullyrt að Tryggvi hefði haft afskipti af sölu á tveimur fyrirtækjum til Baugsfyrirtækja á meðan hann starfaði í Landsbankanum. Skiptastjóri þrotabús tölvuverslunarinnar BT hafi gengið til samninga við Haga, sem er fyrirtæki í eigu Baugs, án þess að svara öðru tilboði í þrotabúið formlega. Fyrirtækið Árdegi hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta í nóvember, en það hafi meðal annars rekið verslanir BT og Skífunnar. Eftir að Árdegi varð gjaldþrota hafi tvö formleg tilboð borist í þrotabú BT. Annað þeirra hafi verið frá Högum, sem er fyrirtæki í eigu Baugs. Samkvæmt fréttum RÚV samþykkti Landsbankinn, sem var helsti lánveitandi Árdegis, tilboðið fyrir sitt leyti með fyrirvara um samþykki skiptastjóra. Fréttastofa RÚV fullyrti í kvöld að Tryggvi Jónsson hefði haft afskipti af málinu á meðan hann vann hjá Landsbankanum. Þá segist fréttastofa RÚV jafnframt hafa heimildir fyrir því að Tryggvi hafi haft bein afskipti af sölu Skífunnar til Senu, dótturfyrirtækis 365 sem er í eigu Baugs.Tryggvi segist ekki hafa stungið upp á kaupendum Tryggvi segir í athugasemd sem hann sendi frá sér vegna fréttar RÚV að hann hafi verið í samskiptum við Árdegi (eiganda BT og Skífunnar) ásamt öðrum starfsmönnum Landsbankans vegna alvarlegrar fjárhagsstöðu fyrirtækisins og hugsanlega sölu. Þeir hafi sjálfir nefnt hverjir væru líklegastir kaupendur og hans eina hlutverk hafi verið að koma á fundum milli forsvarsmanna Árdegis og þeirra sem þeir sjálfir töldu hugsanlega kaupendur. Í framhaldinu hafi Árdegi og Sena átt viðræður um Skífuna, sem hafi lokið með samningi þeirra á milli. Eins og fram hafi komið í fréttum hafi Hagar gert samning við bústjóra þrotabús BT tölva um þau kaup, en ekki keypt af Árdegi og hafi Landsbankinn ekki komið að þeirri sölu. „Ég átti hvorki hugmyndina að því að koma Senu og Högum að samningaborðinu né kom ég að fjármögnun eða kaupsamningum í þessum viðskiptum," segir Tryggvi
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira