Nýskráningum bíla fækkar um 85% 11. mars 2009 12:19
Bílasala hefur ekki farið vel af stað á nýju ári. Fyrstu tvo mánuði ársins voru 296 nýjar bifreiðar nýskráðar en á sama tímabili fyrir ári síðan voru þessar bifreiðar um 2.000 talsins og hefur nýskráningum því fækkað um 85% á milli ára. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að sala nýrra bifreiða hafi dregist hratt saman frá því um mitt síðasta ár og þá drógust nýskráningarnar ennþá meira saman en áður í kjölfar bankahrunsins í september. Á síðasta ársfjórðungi 2008, þ.e. eftir bankahrunið, voru 460 nýskráðar bifreiðar í landinu samanborið við 5.247 á sama tíma 2007. Miðað við það tímabil er samdrátturinn 91%. Í tölum Umferðarstofu kemur fram að alls voru 81 bifreið af þeim 296 sem voru nýskráðar á tímabilinu afskráðar úr landi í kjölfarið og fóru því aldrei á götuna hér á landi. Nokkuð hefur verið um að nýjar bifreiðar hafi verið fluttar úr landi til sölu erlendis eftir að Alþingi samþykkti seint á síðasta ári lög sem gera útflutning bifreiða hagkvæmari en áður. Samkvæmt lögunum fást opinber gjöld endurgreidd að verulegu eða öllu leyti við útflutning. Útflutningur bíla á tímabilinu hefur þó eflaust verið meiri en þessar ofangreindu tölur benda til enda er hér eingöngu um að ræða nýjar bifreiðar og þá er ekki í öllum tilvikum nauðsynlegt að nýskrá bifreið hér á landi til að geta flutt hana út.
Mest lesið Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira