Seðlabankinn gerði kröfu um leynd á láni til Straums 11. mars 2009 14:15
Seðlabankinn gerði þá kröfu á lánveitingu til Straums í desember s.l. að henni yrði haldið leyndri samkvæmt heimildum Fréttastofu. Hér var ekki um 133 milljón evra lánið að ræða sem rætt hefur verið um í fjölmiðlum að undanförnu heldur annað evrulán sem Seðlabankinn veitti Straumi á sama tíma og tilkynnt var um 133 milljónirnar. Samkvæmt heimildum Fréttastofu var 133 miljón evra lánið ekki nýtt lán frá erlendum banka eins og Straumur sagði frá í tilkynningu á sínum tíma. Hér var um endurfjármögnun að ræða það er framlengingu á láninu af hálfu lánadrottna. Þórður Friðjónsson forstjóri Kauphallarinnar segir að þessi framsetning á láninu af hálfu Straums veki upp spurningar um hvort bankinn hafi brotið gegn upplýsingalöggjöf þeirri sem ríkir um skráð félög á markaði. Hið sama eigi raunar við um lánið sem Seðlabankinn veitti ef það lán gæti talist verðmyndandi fyrir hlutabréf Straums frá því í desember. „Almenna reglan er sú að skráð félag á samkvæmt lögum kauphallarinnar að gefa upplýsingar um allar lántökur sínar ef þær teljast verðmyndandi. Og ekki má gefa upp misvísandi upplýsingar um slíkt lán eins og Straumur virðist hafa gert," segir Þórður. „Þetta er mál sem við þurfum að kanna hér hjá okkur." Í tilkynningu frá Straumi þann 5. desember um 133 milljóna evra lánið segir forstjóri bankans, William Fall að „þessi nýja fjármögnun sé mikilvægur árangur fyrir Straum, sérstaklega í ljósi markaðsaðstæðna." Fréttastofa hefur sent Seðlabankanum ítrekaðar beiðnir um upplýsingar um lánveitinguna til Straums frá því bankinn var yfirtekinn á mánudagsmorgun en án árangurs. Í dag barst svo tölvupóstur frá Seðlabankanum þar sem vísað var í lög um trúnaðarskyldu. „Bankaráðsmenn, bankastjórar og aðrir starfsmenn Seðlabanka Íslands eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem varðar hagi viðskiptamanna bankans og málefni bankans sjálfs, svo og um önnur atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli máls, nema dómari úrskurði að upplýsingar sé skylt að veita fyrir dómi eða til lögreglu eða skylt sé að veita upplýsingar lögum samkvæmt. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi," segir í tölvupóstinum. Þess má geta hér að formaður bankastjórnar Seðlabankans upplýsti um lán til Kaupþings í sjónvarpsviðtali skömmu áður en bankinn féll s.l. haust. Þær upplýsingar sem Fréttastofa óskaði eftir frá Seðlabankanum voru hve hátt lán bankans til Straums hafi verið og hvort rétt sé sem heyrst hefur að veð fyrir láninu sé í EQ bankanum í Finnlandi.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira