Nýsköpunarsjóður tapaði 237 milljónum í fyrra 20. maí 2009 16:17
Afkoma Nýsköpunarsjóðs (NSA) á árinu 2008 var í heild neikvæð um 237 milljónir króna. Ávöxtun af fjárvörslu sjóðsins var neikvæð um 0,9% á árinu. Í tilkynningu segir að framlag á afskriftareikning nam samtals 342 milljónum króna. Heildareignir um áramótin voru 4.071 millj.kr. og þar af voru veltufjármunir 2.030 millj.kr. og fastafjármunir 2.042 millj.kr. Eigið fé í árslok var 3.831 millj.kr. Það kom fram í ávarpi Finnboga Jónssonar, framkvæmdastjóra NSA, að ætla megi að í landinu séu starfandi vel á annað hundrað fyrirtæki sem flokka má undir sprotafyrirtæki. „Sá árangur sem mörg nýsköpunarfyrirtæki hafa sýnt á undanförnum árum staðfestir hvaða árangri má ná í atvinnuuppbyggingu á Íslandi í formi fjölbreyttrar flóru smærri fyrirtækja þar sem mannauðurinn er orkan og hreyfiaflið. Eitt mikilvægasta verkefnið í efnahagsmálum á komandi mánuðum og árum er að hlúa að og styðja við uppbyggingu þessara fyrirtækja. Verði það gert mun verða til fjöldi nýrra starfa og um leið auknar gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið." sagði Finnbogi í ávarpi sínu. Í árslok 2008 var NSA eignaraðili í 32 fyrirtækjum eða í fjórðungi þeirra sem fjárfest hefur verið í frá upphafi og nemur kaupverð hlutafjár í þessum félögum miðað við verðlag á ársbyrjun 2009 um 2,4 milljörðum króna. Lán nema um 600 milljónum króna þannig að heildarfjárfesting frá NSA í þessum félögum nemur alls um 3 milljörðum króna. Velta þessara fyrirtækja á árinu 2008 var um 6 milljarðar króna og jókst hún um 50% frá árinu á undan. Áætluð velta þeirra árið 2009 nemur um 9 milljörðum króna. Í maí á þessu ári starfa hjá þeim 470 manns. Á ársfundinum kom fram að eitt af þeim fyrirtækjum sem Nýsköpunarsjóður hefur verið þátttakandi í nánast frá upphafi, Nikita ehf, náði þeim áfanga á síðasta ári að vera með meir en 1 milljarð króna í ársveltu. Forsvarsmönnum Nikita voru afhent hvatningarverðlaunin, „Milljarðamærin" af þessu tilefni, listaverk eftir Steinunni Þórarinsdóttur, myndlistamann.
Mest lesið „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Seðlabankinn eigi að halda stýrivöxtum óbreyttum Viðskipti innlent „Biðin er dýrust“ Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Viðskipti innlent Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Viðskipti innlent Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Seðlabankinn eigi að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Sjá meira