Brugðist við kröfu hollensku sparifjáreigendanna í dag 6. maí 2009 09:53 Gerard van Vliet
Samtökin Icesaving Association, sem berjast fyrir því að hópur hollenskra sparifjáreigenda fái hlut sinn bættan eftir hrun Landsbankans, hafa fengið boð frá Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra að ráðuneytið muni taka mál þeirra til athugunar. Samtökin höfðu gefið íslenska ríkinu frest til dagsins í dag til þess að bregðast við, ella myndu þau kæra Íslendinga til Eftirlitsstofnunar EFTA og Evrópusambandsins á grundvelli mismununar. Undir hatti samtakanna eru 200 einstaklinga sem samtals áttu 4,2 milljarða króna á Icesave reikningum. Gerard van Vliet, forsvarsmaður hópsins segir að ráðuneytið hafi lofað að bregðast við í dag. „Auðvitað vonumst við eftir jákvæðum viðbrögðum, en maður veit aldrei, sérstaklega þegar maður veit af þeim herskara lögfræðinga sem eru í því að veita stjórninni ráðgjöf, " segir Gerard. Hópurinn, sem kallar sig Icesaving Association, telur að með þeirri ákvörðun Alþingis, sem mörkuð var með neyðarlögunum 6. Október síðastliðinn, að verja innistæður Íslendinga sé verið að mismuna sparifjáreigendum á grundvelli þjóðernis. Slíkt sé óheimilt samkvæmt EES samningnum. Hópurinn krefst því að Jóhanna vinni að lausn þeirra mála og að stjórnvöld bæti þeim það fé sem tapast hafi umfram það sem hollensk stjórnvöld munu bæta. En þeir sem áttu Icesave reikninga í Hollandi fá greiddar 100 þúsund evrur frá stjórnvöldum þar í landi. Liðsmenn Icesaving eru hinsvegar þeir sem áttu meira en þetta á reikningum sínum og eins og staðan er í dag eru þeir peningar tapaðir en að sögn Gerards er um að ræða um 200 einstaklinga sem samtals áttu um 25 milljónir evra á Icesave reikningum, eða um 4,2 milljarða íslenskra króna. „Allt í allt voru það 469 einstaklingar sem áttu meira en 100 þúsund evrur á reikningum í Hollandi, samtals um 40 milljónir evra (6,7 milljarða), en um 200 hafa gerst aðilar að Icesaving," segir Gerard. „Hinir hafa annað hvort korið að „gleyma" innistæðum sínum, látist, eða ákveðið að láta tryggingafélög sjá um sín mál."
Tengdar fréttir Hollenskir sparifjáreigendur ætla að kæra Ísland sjötta maí Hópur sparifjáreigenda sem átti fé á reikningum Icesave í Hollandi hefur ítrekað kröfur sínar til Jóhönnu Sigurðardóttur um að lausn verði fundin á málum þeirra. Að öðrum kosti verður lögð fram kæra gegn íslenska ríkinu þann 6. maí næstkomandi hjá Eftirlitsstofnun EFTA og hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. 30. apríl 2009 13:26 Mest lesið Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur Milla ætlar í formanninn Viðskipti innlent Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Viðskipti innlent ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Viðskipti innlent Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan Atvinnulíf Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Viðskipti innlent Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Viðskipti innlent Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Viðskipti innlent LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits Viðskipti innlent Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Sjá meira
Hollenskir sparifjáreigendur ætla að kæra Ísland sjötta maí Hópur sparifjáreigenda sem átti fé á reikningum Icesave í Hollandi hefur ítrekað kröfur sínar til Jóhönnu Sigurðardóttur um að lausn verði fundin á málum þeirra. Að öðrum kosti verður lögð fram kæra gegn íslenska ríkinu þann 6. maí næstkomandi hjá Eftirlitsstofnun EFTA og hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. 30. apríl 2009 13:26
Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Viðskipti innlent
Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Viðskipti innlent