Nýtt Eimskip stofnað - verður 32% í eigu erlends félags 30. júní 2009 16:36
Eimskip áformar að stofna nýtt fjárhagslega öflugt flutninga- og vörustjórnunarfyrirtæki. Nýtt og endurreist félag verður að fullu í eigu lánardrottna Eimskips. Meðal þeirra er bandaríska fjárfestingarfélagið The Yucaipa Companies með um 32% eignarhlut sem jafnframt leggur félaginu til 15 milljónir evra. Nýtt og endurskipulagt Eimskip mun einbeita sér að kjarnastarfsemi sinni. Með þessu á störfum 1.500 manns að vera borgið. Í tilkynningu segir að fyrirætlanir þessar eru háðar samþykki lánardrottna Eimskips. Félagið mun leggja fram beiðni um nauðasamninga til héraðsdóms Reykjavíkur sem mun verða kynnt fyrir lánardrottnum. Þetta mun ekki hafa áhrif á daglegan rekstur félagsins á sviði flutninga og vörustjórnunar. Greiðslur til birgja verða einnig með óbreyttum hætti. Nýtt og endurreist félag verður að fullu í eigu lánardrottna Eimskips. Meðal þeirra er bandaríska fjárfestingarfélagið The Yucaipa Companies með um 32% eignarhlut sem jafnframt leggur félaginu til 15 milljónir evra. Eimskip selur 49% hlutafjár í Versacold Atlas til Yucaipa, sem einnig hefur samið um kauprétt á 51% hlutafjár. Eimskip hefur selt þrjú gámaskip sem gerð voru út frá Noregi. Eimskip mun óska eftir heimild til nauðasamninga. Eimskip Ísland ehf. verður í meirihlutaeigu íslenskra lánardrottna Eimskip hefur unnið með erlendum og innlendum ráðgjöfum frá því í október 2008 að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Gríðarleg skuldsetning félagsins reyndist óviðráðanleg. Sú staða er afleiðing nokkurra illa ígrundaðra fyrirtækjakaupa erlendis og þeirri staðreynd að háar ábyrgðir féllu á félagið. Samdráttaráhrif efnahagskreppunnar á mörkuðum innanlands og utan juku jafnframt vanda félagsins. Markmið stjórnar Eimskips er að hámarka endurgreiðslur til lánardrottna og tryggja áframhaldandi starfsemi á Íslandi og í Norður-Atlantshafi. Með þessu móti er einnig unnt að tryggja þau 1.500 störf sem nú eru hjá félaginu. Eimskip Ísland ehf. verður að fullu í eigu lánardrottna þar af í meirihlutaeigu íslenskra lánardrottna: Landsbanki Íslands hf. mun eignast um 40% í félaginu og NBI um 5%. Yucaipa breytir útistandandi veðtryggðum kröfum í hlutafé og fjárfestir jafnframt 15 milljónir evra í félaginu og eignast þannig um 32% í fyrirtækinu. Ríflega fimmtíu aðrir lánardrottnar eignast 23% í Eimskip Íslandi ehf. Flestir þeirra eru íslenskir sjóðir og skuldabréfaeigendur, þ.m.t. nokkrir lífeyrissjóðir. Núverandi hluthafar félagsins verða ekki í eigendahópi Eimskips Íslands ehf og fulltrúar nýrra eigenda munu skipa nýja stjórn þess eftir endurskipulagningu. Veðtryggðir lánardrottnar Eimskips, Yucaipa, skilanefnd Landsbankans og Íslandsbanki hf., styðja þessar tillögur. Skilanefnd Landsbankans og Íslandsbanki hf. hafa samþykkt að halda áfram fjármögnun sem lýtur að fasteignum Eimskips Íslands ehf. Eimskip mun nú leita eftir heimild til nauðasamninga og mun óveðtryggðum lánardrottnum gefast tækifæri til að kynna sér þessar tillögur. Að því loknu verða óveðtryggðir lánardrottnar beðnir um að greiða atkvæði. Reiknað er með að þetta ferli geti tekið 8 - 10 vikur og vonast er til að endurskipulagningu félagsins verði endanlega lokið á haustmánuðum.
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira