Lárus og Bjarni millifærðu hundruð milljóna rétt fyrir hrun Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 27. júlí 2009 21:00 Lárus Welding, fyrrum forstjóri Glitnis. Mynd/Valli
Í skýrslu endurskoðunarfyrirtækisins Ernst og Young um Glitni kemur fram að þáverandi forstjóri bankans, Lárus Welding, og forveri hans, Bjarni Ármannsson, hafi millifært hundruð milljóna úr bankanum skömmu fyrir hrunið. Í fréttum RÚV kom fram að í skýrslunni hafi meðal annars verið kannaðar óvenjulegar peningafærslur milli fjármálafyrirtækja og landa, þar á meðal háar peningafærslur í september. Þar kemur fram að Lárus hafi fært nánast allt af reikningum sínum í bankanum, um 318 milljónir króna. Ernst og Young hafi hins vegar ekki fundið neina millifærslu úr landi beint frá Lárusi, en KPMG, sem hóf rannsóknina, hafi fundið færslu til Bretlands á nafni eiginkonu Lárusar. Færslan hafi numið 325 milljónum króna. Ekki er víst hvort sú færsla komi af reikningum Lárusar. Í skýrslunni er mælst til að Fjármálaeftirlitið fylgi málinu eftir. Þar er einnig komið inn á nokkrar færslur Bjarna Ármansssonar, sem alls numu 262 milljónum króna. Hæsta upphæðin var færð tæpri viku fyrir ríkisvæðingu bankans. Að auki er fjallað um háar millifærslur tengdra einstaklinga í skýrslunni, þar á meðal Einars Sveinssonar, fyrrum stjórnarmanns í bankanum, skömmu fyrir ríkisvæðinguna. Það mun þó tekið fram í skýrslunni að ekki sé ólöglegt að færa fé af reikningum. Þó sé ástæða til þess að Fjármálaeftirlitið kanni málið betur, ekki síst því upphæðirnar eru háar að því er fram kom í kvöldfréttum RÚV.
Mest lesið Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Atvinnuleysi fimm prósent í júní Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Fleiri fréttir Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Sjá meira