FÍB spyr flokkana um aðgerðir vegna bílalána í erlendri mynt 21. apríl 2009 08:49
Í bréfi sem Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, hefur sent öllum stjórnmálaflokkunum og -hreyfingum er m.a. spurt um hvort mótaðar hafi verið hugmyndir um viðbrögð við greiðsluerfiðleikum fólks vegna bílalána í erlendri mynt, til hvaða aðgerða sé fyrirhugað að grípa til og hvenær, til að leysa vanda þeirra sem eiga í erfiðleikum með það að standa í skilum með afborganir af þessum lánum. Í tilkynningu segir að undanfarið hafi fjöldi fólks sem komið er í greiðsluvanda með bílalán sín, leitað til FÍB. Fjölmargar fjölskyldur endurnýjuðu bíla sína á undangengnum þensluárunum, og oftar en ekki með lánsfé sem þá var auðfengið hjá bönkum og fjármögnunarfyrirtækjum. Erlend myntkörfulán voru algengust og gjarnan tryggð með sérstöku veði í heimilum lántakenda og ábyrgðarmanna. Í kjölfar gengishruns íslensku krónunnar hefur höfuðstóll þessara lána hækkað gríðarlega með samsvarandi áhrifum á afborganir. Bankarnir og fjármögnunarfyrirtækin hafa flest boðið upp á tímabundna greiðslufrystingu fyrir þá sem eru með lán sín í skilum. Það kann að reynast skammgóður vermir. Aðrir sem ekki njóta slíkrar frystingar þurfa hins vegar að róa þungan róður. Í mörgum tilfellum eru bifreiðalán að leggja fjárhag fjölskyldna að velli. Á sama tíma er nánast einvörðungu rætt um lausnir á vanda tengdum húsnæðislánunum. Rétt er að halda því til haga að því fer fjarri að FÍB sé að draga úr þeim vanda. Hins vegar telur félagið brýnt að lausnir verði einnig fundnar á vanda þeirra sem í góðri trú tóku lán í erlendri mynt til kaupa á fjölskyldubifreið. Þessir einstaklingar eru nú í bráðri hættu á að missa heimili sín vegna hækkandi bílalána.
Mest lesið Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur „Biðin er dýrust“ Viðskipti innlent ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Viðskipti innlent Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fleiri fréttir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Sjá meira