Ætla að auka eftirlit með bönkum og lánastofnunum 13. mars 2009 11:02
Neytendastofa og norrænar systurstofnanir hennar, sem fara með eftirlit og framkvæmd laga á sviði neytendamála á Norðurlöndunum, hafa markað sér þá sameiginlegu stefnu fyrir næsta ár að auka eftirlit með bönkum og lánastofnunum með það að markmiði að réttindi neytenda séu að fullu virt. Í tilkynningu segir að þetta var ein af niðurstöðum árlegs samráðsfundar forstöðumanna neytendamála, sem haldinn var í Reykjavík í liðinni viku. Þá var ákveðið að vinna sérstaklega að því að tryggja réttindi neytenda á sviði neytendalána og viðskipta þeirra við fjármálastofnanir. Tryggvi Axelsson, forstjóri Neytendastofu, segir að fjármálakreppan og það efnahagsástand sem hefur skapast í kjölfar hennar hafi nú þegar valdið miklum erfiðleikum fyrir neytendur á Norðurlöndum. „Allt bendir til að allar afleiðingar hennar séu enn ekki komnar að fullu fram og hvaða áhrif hún muni hafa á lögvarin réttindi neytenda á næstu árum." Hann bendir á að mikilsvert sé að bankar og önnur fjármálafyrirtæki virði að öllu leyti sett lög á sviði neytendalána. Það séu ríkir hagsmunir fyrir neytendur og samfélagið í heild að eftirlit sé haft með réttindum neytenda í viðskiptum við banka og önnur fjármálafyrirtæki. Tryggvi segir að á fundinum hafi komið fram að eftir að kreppan skall á hafi stórfjölgað erindum og fyrirspurnum frá neytendum um réttindi sín gagnvart bönkum og lánastofnunum. „Þetta hefur ekki aðeins gerst hér á landi heldur einnig á Norðurlöndunum. Bankar hafa ríka upplýsingaskyldu gagnvart viðskiptavinum og ríkar kröfur eru gerðar til skilmála í lánssamningum við neytendur. Því er áríðandi að lög og reglur um lánastarfsemi séu hafðar í heiðri." Neytendastofa hefur fengið fjölda mála á undangengnu ári er varða ágreining neytenda og fjármálastofnana og segir Tryggvi að þau mál hafi ákveðinn forgang. „Neytendayfirvöld á Norðurlöndum líta á þetta eftirlit sem forgangsverkefni og hyggjast standa öflugan vörð um réttindi neytenda og fjárhagslega hagsmuni þeirra á þessum erfiðu tímum."
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira