Útrásarvíkingur flutti tugi milljóna rétt fyrir hrun Höskuldur Kári Schram skrifar 31. júlí 2009 12:15 Ólafur Ólafsson flutti margar milljónir rétt fyrir hrun. Mynd/ Anton Brink.
Ólafur Ólafsson, sem kenndur er við Samskip, flutti tugmilljónir króna af innistæðureikningi sínum í Kaupþingi Lúxemborg aðeins nokkrum dögum áður en bankinn fór í þrot. Peningarna notaði Ólafur til að fjárfesta í ríkistryggðum verðbréfum en innistæður í íslenskum bönkum erlendis voru ekki tryggðar að fullu. Ólafur Ólafsson, var einn af stærstu eigendum Kauþings en hann átti 10 prósenta hlut í bankanum áður en hann fór í þrot. Fram kemur í DV í dag að Ólafur hafi flutt 40 milljónir króna af innistæðureikningi sínum í Kaupþingi Lúxemborg annan október á síðasta ári - fjórum dögum áður en bankinn fór í þrot - en peningana notaði Ólafur til að fjárfesta í ríkisskuldabréfum. DV segist hafa undir höndum gögn sem sýna fram á þessar millifærslur. Inneignir í íslenskum bönkum erlendis voru tryggðar upp að 20 þúsund evrum eða sem nemur þremur milljónum króna miðað við gengi krónunnar í byrjun október á síðasta ári. Ríkisskuldabréf eru hins vegar tryggð að fullu. Þá kemur einnig fram í umfjöllun DV að Ólafur hafi einnig keypt íbúðabréf fyrir rúmar 46 milljónir króna 7. október - tveimur dögum áður en bankinn fór í þrot - en bréfin seldi hann hins vegar strax daginn eftir. DV hefur eftir ónefndum verðbréfamiðlara að mikil aukning hafi orðið á sölu ríkstryggðra verðbréfa nokkrum dögum fyrir bankahrunið. Kaupendur hafi aðallega verið innistæðueigendur í Lúxemborg.
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira