Met afgangur af vöruskiptum á fyrri hluta ársins 31. júlí 2009 17:23
Vöruskiptajöfnuðurinn í júní mánuði var jákvæður um 8,7 milljarða króna samkvæmt tölum Hagstofunnar og er það í takt við bráðabirgðatölur sem gefnar voru út í byrjun mánaðarins. Alls voru fluttar út vörur fyrir 40,7 milljarða króna og inn fyrir tæpa 32 milljarða í mánuðinum. Hagsjá Landsbankans greinir frá þessu í dag. Á fyrstu sex mánuðum ársins voru fluttar inn vörur fyrir 178,8 milljarða en út fyrir 211,8 milljarða sem gefur jákvæðan vöruskiptajöfnuð upp á tæpa 33 milljarða. Á sama tímabili í fyrra var hann neikvæður um 37,8 milljarða á sama gengi. Aldrei hefur verið meiri afgangur af vöruskiptum ef reiknað er á gengi hvers árs frá 1989.Þriðjungs samdráttur í útflutningi á föstu verðlagi Þegar fyrri árshelmingar 2008 og 2009 eru skoðaðir á föstu gengi sést að útflutningur hefur dregist saman um 30,7%, mestu munar um samdrátt í iðnaðarvörum sem drógust saman um tæpan þriðjung og samdrátt í útflutningsverðmæti sjávarafurða um tæpan fimmtung. Álverð hefur lækkað gríðarlega frá miðju síðasta ári og hefur sú þróun dregið úr útflutningsverðmæti áls, þrátt fyrir framleiðsluaukningu hér á landi. Þá hefur verð á sjávarafurðum einnig verið lágt en veikt gengi krónunnar og kvótaaukning hafa ekki náð að vega að fullu upp á móti verðlækkuninni.Mestur innflutningssamdráttur í flutningstækjum Innflutningur hefur hins vegar dregist mun meira saman eða um tæpan helming, en samdrátturinn er langmestur í innflutningi flutningatækja, sem nú er rétt fjórðungur af því sem hann var í fyrra, miðað við fast gengi. Stærstu innflutningsflokkarnir, hrá- og rekstrarvörur, fjárfestingarvörur og aðrar ótaldar neysluvörur sem saman vógu um 70% af öllum innflutningi á fyrstu sex mánuðum ársins drógust saman um 42-46% samanborið við sama tímabil í fyrra. Mikil óvissa um viðskiptajöfnuð á öðrum ársfjórðungi Viðskiptajöfnuður, sem samsettur er úr vöruskipta- og þjónustujöfnuði auk jöfnuði þáttatekna, hefur ekki verið jákvæður síðan á fyrsta ársfjórðungi 2003. Vöruskiptajöfnuður var hagstæður um 18,4 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi þessa árs og halli á þjónustujöfnuði hefur verið að dragast hratt saman að undanförnu.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Spá aukningu á verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukningu á verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Sjá meira