Kauphöllin áminnir og sektar Landic Property 27. mars 2009 10:37
Kauphöllin hefur ákveðið að áminna Landic Property opinberlega og sekta félagið um 1,5 milljón kr. Er þetta gert þar sem Landic er talið hafa brotið gegn ákvæðum reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga í kauphöllinni. Í tilkynningu frá kauphöllinni um málið kemur fram að forsaga málsins er sú að þann 9. janúar s.l. birti Landic tilkynningu um að félagið ætti í viðræðum við kröfuhafa sína. Meðal annars var rætt um samning sem Landic væri að gera við eigendur skuldabréfaflokks um frestun á vaxtagreiðslum til 6. mars en þær voru á gjalddaga 6. desember í fyrra. Sama dag og Landic tilkynnti um þessar viðræður setti kauphöllin alla skuldabréfaflokka Landic á athugunarlista og óskaði skýringa á því afhverju Landic tilkynnti ekki um dráttinn á vaxtagreiðslunum á fyrrgreindum skuldabréfaflokki. Landic svaraði því til að álit félagsins var að það þjónaði ekki hagsmunum þess og hluthafa að senda tilkynningu í desember þar sem óvíst hefði verið hvort fjármögnun fengist til að hægt væri að standa við greiðslu á skuldabréfaflokknum. Í úrskurði kauphallarinnar segir: „Það leysir útgefanda ekki undan upplýsingaskyldu að upplýsa einungis eigendur útgefinna verðbréfa um fjárhagsörðugleika og vanskil á greiðslum. Með slíkri valkvæðri upplýsingagjöf til afmarkaðs hóps fjárfesta er verið að brjóta gegn jafnræði aðila á markaði um aðgang að upplýsingum sem kunna að hafa marktæk áhrif á markaðsverð verðbréfa ..." Ennfremur segir að ljóst er að Landic birti umræddar upplýsingar fyrst opinberlega rúmum fjórum vikum eftir greiðslufall fyrrgreinds skuldabréfaflokks. Með því brást útgefandi skyldum sínum til að birta upplýsingarnar opinberlega eins fljótt og unnt er í samræmi við reglur Kauphallarinnar.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira