Spá 0,7 prósent hækkun neysluverð 22. janúar 2009 11:44 Höfuðstöðvar Glitnis.
Greiningardeild Glitnis spáir að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,7% í janúar. Ef spáin gengur eftir mun ársverðbólga aukast úr 18,1% í 18,7%. ,,Eins og jafnan í janúar togast nú á áhrif af útsölum og verðskrárhækkanir, en til viðbótar eru áhrif af gengisfalli krónu á seinni hluta síðasta árs, sem enn er að ýta upp verðlagi á ýmsum neysluvörum," segir í Morgunkorni Glitnis. Á heildina litið greiningardeildin þó ráð fyrir að verðlækkun á fötum og skóm vegi til 0,5% lækkunar á vísitölu neysluverð, auk þess sem útsölur draga úr hækkunartakti ýmissa annarra undirliða. Þá var komugjald vegna ýmiss konar heilbrigðisþjónustu hækkað töluvert um áramót, sem og verð á raforku, auk þess sem áhrif af hækkun áfengisgjalds og tóbaksgjalds í desember koma að verulegum hluta fram nú. Telur greiningardeildin að þessi hækkun á opinberum verðskrám og álögum hækki vísitölu neysluverðs um 0,4%. ,,Verðbólga er nú við hámark og teljum við að á næstu mánuðum muni draga verulega úr skriðþunga hennar. Frá og með febrúar taka einnig að heltast úr lestinni mánuðir mikillar verðbólgu þegar horft er til 12 mánaða hækkunartaktsins, og gerum við því ráð fyrir allhraðri hjöðnun 12 mánaða verðbólgu frá og með 2. fjórðungi ársins. Ef spá okkar gengur eftir verður verðbólga komin niður í 14% um mitt þetta ár og niður fyrir 5% í upphafi næsta árs," segir í Morgunkorninu. Á næsta ári telur greingardeildin útlit fyrir að verðbólga verði hófleg og sem fyrr telur hún talsverðar líkur á tímabili verðhjöðnunar einhvern tíma á næstu misserum.
Mest lesið Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira