Viðskipti innlent

Hæstiréttur staðfestir áframhaldandi greiðslustöðvun Hansa

Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Hansa ehf. skyldi veittur réttur til áframhaldandi greiðslustöðvunnar. MP Banki ehf. skaut málinu til Hæstaréttar en bankinn er meðal stærstu kröfuhafa félagsins.

Hansa er eignarhaldsfélag enska fótboltaliðsins West Ham og er Björgólfur Guðmundsson aðaleigandi þess.

Greiðslustöðvun Hansa er því í gildi til 6. mars næstkomandi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×