Sexhundruð manns hafa sótt um teygjulán hjá Íslandsbanka 3. maí 2009 10:12 Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.
Rúmlega 600 manns hafa nú sótt um svokölluð teygjulán hjá Íslandsbanka, samkvæmt upplýsingum frá bankanum. Teygjulán eru fyrir þá viðskiptavini bankans sem eru með húsnæðislán í erlendri mynt og fela þau það í sér að viðskiptavinurinn greiðir sömu afborgun af erlendu láni og greitt var 2. maí 2008. Þannig að í stað þess að afborganir sveiflist hver mánaðarmót og ráðist af gengisþróun krónunnar, þá færist sú sveifla yfir á lánstímann sem lengist og styttist eftir því hvernig gengi krónunnar þróast. Ef krónan veikist, þá lengist lánstíminn og öfugt. Íslandsbanki býður einnig upp á frestun afborgana höfuðstóls og vaxtagreiðslna erlendra húsnæðislána í 6 til 12 mánuði í senn. Landsbankinn og Kaupþing bjóða einnig ýmis úrræði fyrir þá sem eru í vanda staddir vegna erlendra húsnæðislána. Hjá Kaupþingi er hægt að sækja um tímabundna frestun afborgana höfuðstóls erlendra húsnæðislána í allt að fjóra til sex mánuði. Auk þess er hægt að sækja um tímabundna frestun afborgana vaxtagreiðslna erlendra húsnæðislána í allt að 3 mánuði. Vextir í greiðslufresti leggjast þá við höfuðstól lánsins. Viðskiptavinir Landsbankans sem eru með gengistryggð lán með veði í íbúðarhúsnæði geta óskað eftir greiðslujöfnun lánanna. Þá er mögulegt að fresta afborgunum húsnæðislána í erlendri mynt í allt að eitt ár að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Ekki hafa fengist upplýsingar um fjölda þeirra sem sótt hafa um slík úrræði hjá Landsbankanum og Kaupþingi.
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira