Kjalar vill fá borgaðan gjaldeyrissamning á gengi Evrópska Seðlabankans 8. janúar 2009 18:45 Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Kjalar.
Forsvarsmenn fjárfestingarfélagsins Kjalar vilja að Kaupþing borgi þeim út gjaldeyrissamning á gengi Evrópska Seðlabankans, sem er um helmingi hærra en gengi Seðlabanka Íslands. Forstjóri félagsins neitar því að alfarið að félagið hafi tekið stöðu á móti krónunni. Fjárfestingarfélagið Kjalar er að mestu í eigu Ólafs Ólafssonar kenndur við Samskip. Við upphaf síðasta árs hafði félagið gert gjaldeyrissamninga við Kaupþing. Þessir samningar fólu í sér að í október á síðasta ári átti Kaupþing að afhenda félaginu 650 milljónir evra gegn fastri greiðslu. Skilanefnd Kaupþings hafði þá tekið við bankanum og upphæðin ekki greidd. Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Kjalar, segir að á þeim tíma hafi mikil eftirspurn verið eftir evrum á Íslandi af hálfu erlendra aðila. Félagið telji að það hafi því getað selt evrurnar með verulegum hagnaði þá og að það hafi orðið af þessum hagnaði. Forsvarsmenn Kjalars telja eðlilegt að við uppgjör hans verði stuðst við gengi Seðlabanka Evrópu frá því í október en þá skráði bankinn evruna á um 300 krónur. Seðlabanki Íslands skráði gengi evrunnar hins vegar helmingi lægra þá og ljóst að Kjalar fengi um hundrað milljörðum krónum meira ef samningurinn yrði gerður upp út frá gengi Evrópska Seðlabankans. Með gjaldeyrissamningum líkt og þeim sem Kjalar gerði fá fyrirtækin meira ef að krónan veikist. Samningurinn er nokkuð stór, var hátt í hundrað milljarðar króna þegar hann var gerður eða sem nemur hátt í einum fimmta af varagjaldeyrisforða Íslendinga. Hjörleifur þvertekur fyrir að með samningunum hafi félagið tekið stöðu á móti krónunni og átt þátt í að fella gengi hennar. Félagið hafi einungis verið að verja erlendar skuldir sínar. Hann sýndi fréttamanni hluta af ársreikningum félagsins því til staðfestingar. Þar sést að heildarskuldir félagsins voru um hundrað milljarðar króna um mitt síðasta ár. Fréttmaður fékk þó ekki að sjá sundurliðun á skuldunum en Hjörleifur fullyrðir að þær hafi allar verið í erlendri mynt. Hjörleifur segir félagið eiga íslenskar eignir. Í ársbyrjun 2008 hafi það skuldað töluvert í erlendri mynt. Þeir hafi talið hættu á að krónan veiktist á þessu ári og því ákveðið að gera gjaldmiðlaskiptasamninga til að skuldirnar væru allar í íslenskum krónum en ekki í erlendri mynt.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira