Staða ríkissjóðs versnaði um 46 milljarða kr. í fyrra 8. janúar 2009 12:59
Samkvæmt greiðsluuppgjöri ríkissjóðs fyrstu ellefu mánuði síðasta árs nam handbært fé frá rekstri 7,3 milljörðum kr. innan ársins, sem er 46,2 milljarða kr. verri útkoma heldur en á sama tíma í fyrra. Innheimtar tekjur ríkissjóðs námu 393 milljörðum kr. sem er aukning um rúma 3 milljarða kr. frá sama tíma í árið áður, eða 0,9% aukning að nafnvirði. Tekjuáætlun ársins gerði ráð fyrir að innheimtar tekjur væru 398 milljörðum kr. og eru þær því um 5 milljörðum kr. undir áætlun. Skatttekjur og tryggingagjöld námu 354 milljarða kr. sem er litlu hærri upphæð en árið 2007. Á sama tíma hefur almennt verðlag hækkað um 11,5% og skatttekjur og tryggingagjöld hafa því dregist saman um 10,2% að raunvirði. Aðrar rekstrartekjur jukust um 26,8% og þar af er mest hækkun á vaxtatekjum af bankainnstæðum. Greidd gjöld nema 392,5 milljörðum kr. og hækka um 64,5 milljarða kr. frá fyrra ári eða um tæp 20%. Mest aukning er vegna almannatrygginga- og velferðarmála 20,1 milljarðar kr. eða 25,6%. Þar munar mest að lífeyristryggingar hækka um 10,8 milljarða kr. á milli ára, fæðingarorlofsgreiðslur um 1,5 milljarða kr. og vaxtabætur um 1,4 milljarða kr.Almenn opinber þjónusta hækkar um 9,1 milljarða kr. eða um 22%. Þar af hækka vaxtagjöld um tæpa 2 milljarða kr. Aukning útgjalda til efnahags- og atvinnumála nam 13,2 milljörðum kr. milli ára eða 28,2%. Útgjöld til heilbrigðismála jukust um 12,2 milljarða kr. eða 14,2% milli ára, og til menntamála um 4,1 milljarða kr. eða 11,7%.
Mest lesið Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Scobie hjónin: „Við eigum frekar að njóta meira og vera þakklát fyrir allt sem við höfum“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Sjá meira