Hagnaður hjá House of Fraser og Iceland í sókn 8. janúar 2009 12:21 Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs.
Breska verslunarkeðjan House of Fraser sem er í eigu Baugs tilkynnti í dag um gott gengi í jólavertíðinni. Á fimm vikna tímabili fyrir jól og fram til þriðja janúar jókst heildarsala í verslunum félagsins um 4,5 prósent miðað við sama tímabil í fyrra og hagnaður jókst Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs segir að þar á bæ séu menn mjög ánægðir með þetta góða gengi, ekki síst í ljósi þess erfiða ástands sem nú sé á breskum smásölumarkaði. „Þetta eru mjög fínar fréttir og við erum afar ánægðir með ganginn á House of Fraser sem hefur verið mjög góður heilt á litið," segir Gunnar Sigurðsson forstjóri Baugs í samtali við fréttastofu. „Þessar niðurstöður sýna betur en nokkuð annað styrkleikann í félaginu. Í tilkynningunni frá House of Fraser kemur einnig fram að fjárhagsleg staða félagsins sé góð. Lausafjárstaðan er um 85 milljónir punda og hefur félagið staðið að fullu í skilum. Fjórar nýjar búðir í fyrra „Við höfum borgað niður gríðarlega mikið af skuldum þrátt fyrir ofboðslega fjárfestingu í nýjum búðum, en við opnuðum fjórar nýjar búðir í fyrra," segir Gunnar ennfremur. „Við höfum einnig lagt mikið í breytingar á gömlu búðunum til þess að gera House of Fraser að þeirri hágæðaverslun sem við teljum að hún eigi að vera. Þetta hefur kostað mikið og því eru þessar niðurstöður því mjög góðar, sérstaklega ef maður setur þær í samhengi við þær erfiðu rekstraraðstæður sem eru í breskri smásölu í dag," segir hann. Aðspurður um ganginn á öðrum verslunum í eigu Baugs í Bretlandi segir Gunnar að greining á þeim standi nú yfir. „En ef við horfum eignasafnið í heild sinni er það upp um 4,5 prósent á þessu tímabili. Markaðsupplýsingar gefa hinsvegar til kynna að markaðurinn í heild sinni hafi verið niður um fjögur prósent á sama tímabili. Þetta er því frábær árangur okkar fyrirtækja og þar fara Iceland verslanirnar fremstar í flokki," segir Gunnar en að hans sögn var gríðarleg söluaukning hjá Iceland keðjunni fyrir jólin. „Sum tískuvörumerkin voru einnig mjög sterk og önnur ekki eins og gengur, en heilt yfir er þetta mjög ásættanleg niðurstaða og í rauninni betri heldur en við vorum farnir að óttast." Iceland bætir við sig 51 verslun Iceland keðjan festi fyrir jólin kaup á 51 Woolvorths verslun og segir Gunnar það afar góðar fréttir fyrir Iceland. „Þetta er mjög spennandi því þótt Iceland hafi gengið mjög vel eins og fram hefur komið hefur aðgangur að verslunarrými staðið frekari vexti fyrir þrifum," segir hann. „Þrátt fyrir mikla áherslu á aukinn vöxt hefur okkur ekki tekist að opna nema nítján nýjar búðir síðustu tvö ár. Það er mjög erfitt að finna gott verslunarrými fyrir þennan rekstur þannig að svona 50 búða pakki hefur mikil áhrif á félagið til góðs þannig að það eru spennandi tímar framundan," segir Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs að lokum.
Mest lesið Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Scobie hjónin: „Við eigum frekar að njóta meira og vera þakklát fyrir allt sem við höfum“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Sjá meira