Verðum að vinna traust Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 1. febrúar 2009 11:34 Jón Daníelsson
Jón Daníelsson dósent í hagfræði segir að það eina sem komi í veg fyrir að krónan geti flotið séu svokölluð jöklabréf. Hann segir ákvarðanafælni hafa einkennt fyrrverandi ríkisstjórn en leysa þarf málin með jöklabréfin hið snarasta. Hann vill bjóða eigendum þeirra að kaupa ríkisskuldabréf því annars muni krónan hríðfalla þegar hún verður sett á flot. Nafnarnir Jón Baldvin Hannibalsson og Jón Daníelsson eru gestir á Sprengisandi á Bylgjunni þar sem þeir ræða efnahagsmál. Jón Daníelsson segir einnig að ljóst sé að vaxtalækkunarferlið strandi á Alþjóðagjaldeyrissjóðnum vegna þess að þeir hafi ekki trú á yfirvöldum. Hann segir mikilvægt að yfirvöld vinni traust sjóðsins. Jón Daníelsson sagði að fráfarandi ríkisstjórn hafi gert sér grein fyrir því hve staðan var veik mörgum mánuðum áður en bankarnir hrundu. „Þessi neyðarlög voru ekki skrifuð á einni nóttu. Þeir hefðu því átt að vera með tilbúna áætlun en það gerðist ekkert." Jón Baldvin tók undir með nafna sínum og sagði augljóst að allar viðvörunarbjöllur hefðu verið blikkandi lengi. Hann segir að ýmislegt hefði verið hægt að gera en menn hefðu sofið á verðinum og ekki verið með neitt „plan B" eins og hann orðaði það. „Sennilega er það rétt að í huga seðlabankastjóra var það sem hann lýsti í Kastljósinu stóra planið. Við borgum ekki, við borgum ekki, við borgum ekki. Þið vitið ekki hvað við ætlum að gera. Við ætlum ekki að borga skuldirnar og innan skamms tíma verður íslenska ríkið skuldlítið og við byrjum nýtt líf. Þetta var bara kolröng hugsun og alveg út í hróa hött, það var ekki glóra í því sem maðurinn var að segja," sagði Jón Baldvin.
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira