Sena seld til Garðarshólma 4. mars 2009 12:30 Jón Diðrik.
Stjórn Íslenskrar afþreyingar hf. hefur, að undangengu formlegu söluferli, gengið að tilboði Garðarshólma Rekstrarfélags í öll hlutabréfin í Senu. Tilboðið, sem er með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar, metur heildarvirði Senu á 500 milljónir kr. Garðarshólmi yfirtekur engar skuldir frá Íslenskri afþreyingu við söluna. Í tilkynningu um málið segir að Straumur fjárfestingabanki hf. hafi annast formlegt söluferli á Senu. Söluferlið hófst í janúar s.l. og óskuðu þá 20 aðilar eftir formlegri þátttöku. Átta aðilar skiluðu inn óskuldbindandi tilboðum í félagið fyrir 5. febrúar s.l. Í framhaldinu var gengið til viðræðna við þá er höfðu lagt fram hagstæðustu tilboðin en frestur þeirra til að skila inn bindandi tilboði rann út í gær. Capacent Fyrirtækjaráðgjöf var ráðgjafi Garðarshólma í ferlinu. Sena er stærsta afþreyingarfyrirtæki landsins og felur starfsemin í sér innflutning og sölu á tónlist, kvikmyndum og tölvuleikjum ásamt því að skipuleggja atburði af ýmsum toga, með íslenskum og erlendum listamönnum. Sena rekur verslanir Skífunnar og kvikmyndahúsin Smárabíó, Háskólabíó, Regnbogann og Borgarbíó Akureyri. Garðarshólmi er í eigu Jóns Diðriks Jónssonar og Magnúsar Bjarnasonar. Gert er ráð fyrir aðkomu Björns Sigurðssonar framkvæmdastjóra Senu og lykilstjórnenda í kaupunum. Jón Diðrik Jónsson mun verða stjórnarformaður félagsins en hann hefur langa reynslu af neytendamarkaðsmálum í gegnum stjórnunarstörf hjá Coca-Cola í Asíu og Evrópu og sem forstjóri Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf. Jón Diðrik var áður forstjóri Glitnis og ráðgjafi Reykjavík Energy Invest.
Mest lesið John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Viðskipti innlent Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Viðskipti innlent Milla ætlar í formanninn Viðskipti innlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Viðskipti innlent Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Viðskipti innlent Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan Atvinnulíf Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Sjá meira