NBA í nótt: Orlando vann Phoenix Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. mars 2009 09:00 Það var tekið á því í leik Phoenix og Orlando í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Orlando vann í nótt sigur á Phoenix, 111-99, þar sem Dwight Howard fór mikinn og skoraði 21 stig auk þess sem hann tók átta fráköst. Rashard Lewis skoraði 29 stig fyrir Orlando og Hedo Turkoglu 22. Orlando tapaði alls 24 boltum í leiknum en náði engu að síður að innbyrða sigur. Shaquille O'Neal skoraði nítján stig fyrir Phoenix auk þess sem hann tók ellefu fráköst. Hann fékk svo á sig tæknivillu þegar þrjár og hálf mínúta var eftir og komst Orlando þá á 9-0 sprett. Jason Richardson var með 27 stig fyrir Phoenix og Steve Nash 20 en þetta var hans fyrsti leikur eftir að hann hafði meiðst á ökkla. Houston vann Toronto, 107-97. Carl Landry skoraði 22 stig og jafnaði þar með persónulegt met. Luis Scola bætti við 20 stigum auk þess sem hann tók sextán fráköst. Detroit vann Denver, 100-95. Chauncey Billups skoraði 34 stig gegn sínu gamla liði en það dugði þó ekki til. Denver lék án Carmelo Anthony sem tók út leikbann í nótt. Charlotte vann Chicago, 96-80. Raymond Felton skoraði átján stig og var með níu stoðsendingar þar að auki. Raja Bell var einnig með átján stig. Golden State vann Minnesota, 118-94. Stephen Jackson var með 23 stig, sjö fráköst og sex stoðsendingar fyrir Golden State. New Jersey vann Milwaukee, 99-95. Brook Lopez var með 24 stig og tólf fráköst en Jarvis Hayes setti niður fimm þrista í leiknum í nótt. Indiana vann Sacramento, 117-109. Jarrett Jack var með 26 stig og Troy Murpcy 23 stig, tíu fráköst og sex stoðsendingar. LA Lakers vann Memphis, 99-89. Kobe Bryant skorað 31 stig sem hefði annars tapað sínum þriðja leik í röð.
NBA Mest lesið Bætti á sig átta kílóum, vann tvöfalt og er á leið út Handbolti Íslandsmeistarinn Ægir Þór: „Þetta er bara algjör þvæla“ Körfubolti Forest bannaði Neville að mæta á völlinn Enski boltinn Sjáðu neglur Arons og ótrúlegt skallamark þess sænska Íslenski boltinn Vildi ekki skipta um lið bara til þess eins að skipta um lið Handbolti Vann meistarana í gær og valin í landsliðið í dag Fótbolti Matic reyndist sannspár með söluna á McTominay Fótbolti Tugir þúsunda fögnuðu á götum Napoli Fótbolti „Sannleikurinn“ Edwards þarf að skjóta sópinn úr höndum OKC Körfubolti Uppgjörið: Þór/KA - Stjarnan 1-0 | Mark Söndru Maríu skildi á milli Íslenski boltinn Fleiri fréttir Siakam sjóðheitur þegar Pacers komst í 2-0 „Sannleikurinn“ Edwards þarf að skjóta sópinn úr höndum OKC Íslandsmeistarinn Ægir Þór: „Þetta er bara algjör þvæla“ Sylvía snýr aftur með nýliðunum: „Hefur verið nauðsynlegur tími fyrir mig“ Blóðgaði dómara Eru klárlega með gæði til að spila í efstu deild Þýskalands Tók við MVP-styttunni og skoraði svo 38 stig Finnur fyrir miklum létti: „Algjört andlegt rugl“ EuroBasket aftur í fjórum löndum og Spánn stefnir á áhorfendamet Utan vallar: Í reykjarmekki alsælunnar Voru með 0,2 prósent sigurlíkur þegar þrjár mínútur voru eftir en unnu samt „Kemur væntanlega risastórt tómarúm“ Lygilegur endurkomusigur Indiana í MSG Sjáðu magnaðar myndir úr klefa Stjörnumanna Valinn verðmætastur eftir besta tímabil í sögu félagsins „Körfuboltaguðirnir voru búnir að ákveða“ Ægir valinn verðmætastur „Þakka Guði fyrir að leyfa mér að upplifa þetta“ Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 77-82 | Stjarnan er Íslandsmeistari Shaq segist hundrað prósent Samfélagið á Sauðárkróki ekki í vinnuhæfu ástandi Þruman skellti í lás og tók forystuna Tryllt eftirspurn eftir miðum „Ég fékk að gera ótal mistök og læra af þeim“ Þakkaði sjálfboðaliðum og minnti á mikilvægi íþrótta Lögmálið: Er NBA að svindla í lottóinu? Svarar Brynjari fullum hálsi: „Óboðleg tilraunastarfsemi á börnum í íþróttum“ Pétur tekur við þjálfun Hauka „Fallegasta samband sem hægt er að mynda“ Reiknar ekki með Shaq í oddaleiknum í Síkinu: „Vesen með nýrun“ Sjá meira