Viðskipti innlent

Reikna með líflegri útgáfu ríkisbréfa

Líklegt er að útgáfa ríkistryggðra skuldabréfa verði lífleg á árinu, en þó á ríkissjóður að öllum líkindum enn talsvert lausafé í handraðanum til að mæta ört vaxandi fjármögnunarþörf.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar er vitnað í nýútkomið mánaðarit Seðlabankans, Lánamál Ríkisins. Þar kemur fram að von sé á áætlun ríkissjóðs fyrir útgáfu skuldabréfa síðar í mánuðinum. Á síðasta ári voru gefin út ríkisbréf fyrir u.þ.b. 133 milljarða kr. að nafnverði og ríkisvíxlar fyrir tæpa 74 milljarða kr. að nafnverði.

Samkvæmt tölum Seðlabanka var innistæða ríkissjóðs á viðskiptareikningi í bankanum alls rúmir 163 milljarðar kr. í lok nóvember síðastliðins. Þótt sú upphæð sé tæplega öll til ráðstöfunar á móti væntanlegum halla á fjárlögum má gera ráð fyrir að fjármögnunarþörf ríkissjóðs á markaði sé verulega minni en ella næsta kastið vegna þessa.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×