Viðskipti innlent

Hafnar athugasemdum um óeðlileg hagsmunatengsl

Arna Schram.
Arna Schram.

Blaðamannafélagið vinnur að málum fyrrverandi starfsmanna Viðskiptablaðsins með sama hætti og unnið var að málum varðandi þrotabú gamla Fréttablaðsins, segir Arna Schram, formaður blaðamannafélags Íslands. Fréttablaðið bendir á það í dag að 15 fyrrverandi starfsmenn Viðskiptablaðsins hafi leitað til Blaðamannafélags Íslands. Fólkið hefur ekki fengið greidd laun né uppsagnafrest eftir að Framtíðarsýn, sem var rekstrarfélag blaðsins, óskaði eftir greiðslustöðvun. Það mun því koma í hlut Blaðamannafélagsins að gera kröfu í bú Framtíðarsýnar fyrir hönd þeirra ef Framtíðarsýn verður tekið til gjaldþrotaskipta.

Hefur oft sótt réttindi gagnvart vinnuveitanda sínum

Arna er hins vegar í hópi þeirra starfsmanna sem fengu starf hjá Myllusetri, nýju útgáfufélagi blaðsins, eftir að það tók við blaðinu. Hún hefur því fengið greitt umsamið kaup og kjör. Sem formaður Blaðamannafélagsins mun hún því þurfa að sækja réttindi fyrir fyrrverandi samstarfsmenn sína af fjölmiðlinum sem hún starfar hjá. Arna segir að þetta skapi ekki óeðlileg hagsmunatengsl. Hún hafi starfað hjá þremur fjölmiðlum. Hjá öllum þessum miðlum hafi félagið með einum eða öðrum hætti þurft að sækja rétt félagsmanna í ýmsum málum. Arna segir að það fyrirkomulag hafi orðið ofan á hjá Blaðamannafélaginu að formaður vinni ekki á skrifstofu félagsins heldur á fjölmiðlum. Þetta sé að mörgu leyti mjög gott fyrirkomulag en hafi þann ókost að formaður geti lent í alls kyns stöðu gegn atvinnurekendum.

Vill að upplýst verði um eigendur Viðskiptablaðsins



Ekki hefur verið upplýst um það hverjir nýir eigendur að Viðskiptablaðinu eru. Arna gagnrýnir þetta fyrirkomulag. „Ég hef aldrei legið á þeirri skoðun minni að mér finnst það rétt að upplýsingar um eignarhald fjölmiðla séu opinberaðar," segir Arna. Hún bendir þó á að það hafi komið fyrir áður að eignarhald á fjölmiðlum hafi verið óljóst um tíma. Hún bendir á Fréttablaðið máli sínu til stuðnings.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×