Viðskipti innlent

Toyota mest seldi bíllinn nítjánda árið í röð

Toyota Land Cruiser seldist vel á þessu ári.
Toyota Land Cruiser seldist vel á þessu ári.
Mest seldi bíllinn árið 2008 var Land Cruiser 120 en 485 bílar af þeirri gerð voru skráðir á síðasta ári. Í öðru sæti er Yaris með 478 nýskráningar. Af tíu vinsælustu fólksbílunum hér á landi á síðasta ári eru fimm frá Toyota.

Alls voru 9.026 nýjar fólksbifreiðar skráðar á síðasta ári samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu. Þar af voru 2.311 frá Toyota eða 25,6%. 1.234 nýjar sendibifreiðar voru skráðar á síðasta ári. Þar er Toyota Hilux í fyrsta sæti, en 181 bifreið var skráð á síðasta ári.

Þetta er 19. árið í röð sem Toyota er mest seldi bíllinn á Íslandi.

Það sem af er ári hafa 23 bílar selst á Íslandi og þar af eru 11 frá Toyota, eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Toyota umboðinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×