Viðskipti innlent

Tæplega 40 félög vilja gera upp í erlendum gjaldmiðli

Samkvæmt upplýsingum frá ársreikningaskrá hafa 39 félög nýtt sér ákvæði laga um að fá að gera upp í erlendum gjaldmiðli. Hafa þau sótt um heimild ársreikningaskrár til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli vegna reikningsársins 2008.

Í yfirgnæfandi tilvika er hinn erlendi gjaldmiðill sem sótt er um evra. Á vegum ársreikningaskrár er nú unnið að því að yfirfara og afgreiða umræddar umsóknir.

Fjallað er um málið í vefriti fjármálaráðuneytisins. Þar segir að með lögum sem samþykkt voru á Alþingi 18. desember sl. var opnað fyrir það að félög gætu, fyrir 30. desember 2008, sótt um heimild ársreikningaskrár til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli, annars vegar vegna reikningsárs sem hófst 1. janúar 2008 eða síðar á því ári og hins vegar vegna reikningsársins sem hófst 1. janúar 2009.

Þessi tímabundna og afturvirka breyting var gerð í ljósi þess ástands sem ríkir í efnahagslífi landsins og þeirra breytinga sem áttu sér stað á gengi íslensku krónunnar á árinu 2008 en talið var að sú þróun kynni í sumum tilfellum að vekja upp spurningar um hvaða starfrækslugjaldmiðill, í skilningi laga um ársreikninga, gefi í raun rétta mynd af afkomu og efnahag félaga á reikningsárinu 2008.

Var breytingin hluti af aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar til að bregðast við vanda fyrirtækja í landinu. Viðkomandi fyrirtæki þurfa eftir sem áður að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í lögum um ársreikninga fyrir veitingu heimildar ársreikningaskrár.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×