Viðskipti innlent

Samstarf um viðskipti og fjárfestingar á milli Íslands og Bandaríkjanna

Christopher S. Wilson, og starfandi utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, undirrituðu samninginn.
Christopher S. Wilson, og starfandi utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, undirrituðu samninginn.

Undirritaður var í dag rammasamningur um samstarf um viðskipti og fjárfestingar á milli Íslands og Bandaríkjanna. Helsta markmið samningsins er að styrkja samstarf á milli íslenskra og bandarískra stjórnvalda á sviði viðskipta og fjárfestinga.

Það voru þeir Christopher S. Wilson, stjórnandi Viðskiptaskrifstofu Bandaríkjanna fyrir Evrópu og Mið-Austurlönd og Össur Skarphéðinsson, starfandi utanríkisráðherra, sem undirrituðu samninginn.

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að samningurinn mæli fyrir um stofnun formlegs samráðsvettvangs íslenskra og bandarískra stjórnvalda um viðskipti og fjárfestingar. Fulltrúar utanríkisráðuneytisins og Viðskiptaskrifstofu Bandaríkjanna fara sameiginlega með formennsku á þessum vettvangi, en að öðru leyti er hann skipaður fulltrúum frá viðeigandi stofnunum eða einkaaðila, eftir atvikum.

„Ráðherrarnir vonast til að samráð á grundvelli samningsins styrki og auki viðskipti landanna. Þá lýsti starfandi utanríkisráðherra áhuga íslenskra stjórnvalda á að tryggja Íslendingum aðgang að sérstökum vegabréfsáritunum til Bandaríkjanna sem ætluð eru starfsmönnum erlendra fyrirtækja og fjárfestum," segir einnig í tilkynningunni.

Viðskipti landanna árið 2007 námu sem svarar til 100 milljörðum ísl. kr., þar af nam innflutningur frá Bandaríkjunum 75 milljörðum ísl. kr.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×