Kröfum Jóns Ásgeirs og Kristínar vísað frá dómi 15. janúar 2009 16:45 Jón Ásgeir Jóhannesson kaupsýslumaður.
Héraðsdómur hefur vísað frá kröfu systkinanna Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Kristínar Jóhannesdóttur um að rannsókn á meintum skattalagabotum þeirra yrði úrskurðuð ólögmæt. Krafa þeirra var í fyrsta lagi rökstudd með því að rannsókn á Baugsmálinu hafi staðið óhæfilega lengi yfir. Hefði ríkislögreglustjóri brotið gegn rétti þeirra systkina til réttlátrar málsmeðferðar innan hæfilegs tíma með því að ljúka ekki rannsókn málsins fyrr. Í öðru lagi var krafan rökstudd með því að settur ríkislögreglustjóri hefði ekki lagt sjálfstætt mat á rannsóknina. Hinum reglulega ríkislögreglustjóra hafi verið gert að víkja sæti við rannsókn málsins og annar maður settur til að gegn störfum hans við hana. Systkinin óskuðu þess til vara að Helga Magnúsi Gunnarssyni, saksóknara efnahagsbrota við embætti ríkislögreglustjóra, yrði gert að víkja sæti við rannsókn málsins. Sú krafa var rökstudd með því að saksóknarinn hefði verið svo viðriðinn rannsókn svonefnds Baugsmáls allt frá upphafi þess að hann væri vanhæfur til að stýra rannsókn þessa máls. Í niðurstöðu þeirra dómara sem úrskurðuðu um kröfu systkinanna segir að málið sem ákært sé í hafi verið til rannsóknar hjá ríkislögreglustjóra þegar krafan barst dóminum. Þeirri rannsókn sé hins vegar lokið og hafi ákæra verið gefin út og falin ákveðnum dómara til meðferðar. Eftir þann tíma verði fjallað um allar kröfur sem varði rannsóknina og hæfi þeirra sem hana önnuðust í tengslum við meðferð málsins samkvæmt ákærunni. Á þessum forsendum var kröfum systkinanna vísað frá dómi.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira