Grunur um að milljarða millifærsla Kaupþings tengist Tchenguiz 16. apríl 2009 18:30
Fjármálaeftirlitið hefur enn 100 milljarða króna millifærslur Kaupþings inn á erlenda reikninga rétt fyrir hrun bankans til rannsóknar. Grunur leikur á að millifærslurnar tengist eignarhaldsfélagi Robert Tchenguiz, Oscatello. Stuttu eftir fall Kaupþings greindi fréttastofa Stöðvar 2 frá hundrað milljarða króna millifærslum frá bankanum hér á landi inn á erlenda reikninga. Skilanefnd bankans skoðaði málið og í framhaldinu fór það inn á borð hjá Fjármálaeftirlitinu. Málið var einnig tekið fyrir í viðskiptanefnd Alþingis. Nú rúmu hálfu ári síðar er málið enn til rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu og hefur ekki verið sent til sérstaks sakskóknara. Heimildir fréttastofu herma að verið sé að rannsaka hvort að millifærslurnar tengist 107 milljarða króna lánveitingu til Oscatello, einkahlutafélags í eigu Robert Tchenguiz. Erfitt hefur verið að nálgast upplýsingar um málið, m.a. vegna bankaleyndar í öðrum löndum, þ.m.t. Lúxemborg. Tchenguiz var í umfangsmiklum viðskiptum við Kaupþing. Hann var hluthafi í bankanum í gegnum Exista þar sem hann var stjórnarmaður og tók þátt í ýmsum fjárfestingum með bankanum. Auk þess voru lánveitingar bankans til hans himinháar. Skilanefnd Kaupþings stefndi Oscatello í febrúar vegna vanefnda á skuldbindingum gagnvart bankanum. Nú hefur skilanefndin falið breska endurskoðunarfyrirtækinu Grant Thornton að innheimta lánin til Tchenguiz en hann hefur að undanförnu selt töluvert af eignum sínum. Deilur standa nú yfir milli skilanefndarinnar og Tchenguiz hvort hann haldi söluhagnaðinum af bresku verslunarkeðjunni Somerfield en Kaupþing telur að bankinn hafi átt veð í keðjunni.
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira