Viðskipti innlent

Búð opnuð á Bakkafirði á ný

Verslun var opnuð á Bakkafirði á ný nú um áramótin. Þessi eina búð í einu fámennsta þorpi landsins er þó aðeins opin tvo tíma í senn fimm daga vikunnar.

Meðan Reykvíkingar og nærsveitungar geta valið um mörghundruð verslanir og meira að segja keypt í matinn allan sólarhringinn er staðan í verslunarmálum víða á landsbyggðinni öllu verri.

74 íbúar Bakkafjarðar fagna því nú að hafa fengið aftur búð í litla þorpið sitt en frá því í haust hafa þeir þurft að aka annaðhvort 35 kílómetra yfir Sandvíkurheiði til Vopnafjarðar eða 45 kílómetra leið Þórshafnar til að geta keypt í matinn. Þegar gömlu búðinni á Bakkafirði var lokað í október auglýsti sveitarfélagið Langanesbyggð eftir áhugasömum aðila til að hefja verslunarrekstur á ný. Björn Guðmundur Björnsson, fulltrúi á hreppsskrifstofunni, gaf sig fram og hefur hann nú opnað verslunina Mónakó, sem selur helstu nauðsynjar til heimilsins.

Ekki stendur hann þó sjálfur við búðarborðið heldur hefur ráðið einn starfsmenn til að sjá um búðina. Opnunartími er takmarkaður. Fjóra daga vikunnar, mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og föstudaga, er opið tvo tíma í senn, milli klukkan fjögur og sex síðdegis, og á laugardögum er opið í kringum hádegið, frá klukkan ellefu til eitt. Lokað er á fimmtudögum og sunnudögum. Björn segir að versluninni hafi verið vel tekið.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×