Burt með Ísraelsher! Neyðaraðstoð til Gaza Sveinn Rúnar Hauksson skrifar 24. janúar 2009 06:00 Sveinn Rúnar Hauksson skrifar um Gaza Eins og við hafði verið búist þá linnti árásum Ísraelshers á Gaza um síðustu helgi, að minnsta kosti í bili? Það þurfti að sópa gólf áður en nýr Bandaríkjaforseti tæki við. Enda þótt dauðinn og eyðileggingin af völdum Ísraelshers sé ægileg en hún blasir við sjónum hvarvetna á Gazasvæðinu, þá er önnur eyðilegging sú sem Ísraelsstjórn hefur valdið sjálfri sér og Ísraelsríki um langa framtíð. Hann verður seint máður af morðingjabletturinn sem nú stingur í augun meira en nokkru sinni fyrr í sex áratuga blóðugri hernámssögu Ísraelsríkis gagnvart nágrönnum sínum. Það er tímanna tákn að Ísraelsstjórn fékk að vita hjá Össuri Skarphéðinssyni, starfandi utanríkisráðherra, að menntamálaráðherra Ísraels væri ekki velkominn til Íslands. Ísraelsstjórn hafði ákveðið einhliða að senda ráðherra sína vítt og breitt um Evrópu til að freista þess að þvo blóðblettina af ímynd sinni, en skilaboð eins og þau sem hún fékk í íslenska utanríkisráðuneytinu og í mótmælum milljóna manna um allan heim hafa einna helst hjálpað henni til að átta sig á því að nú yrði ekki sprengt og drepið meira, að minnsti kosti ekki í bili. Ísraelsstjórn lýsti yfir einhliða vopnahléi. Enginn samningur er um vopnahléð og ekki tryggt að Ísraelsher hverfi frá svæðinu né að fangelsishlið Gazastrandar verði opnuð. Af því leiðir áframhaldandi skort á vatni, eldsneyti, rafmagni og öllum lífsnauðsynjum. Það hindrar að hægt verði að endurreisa atvinnulíf á svæðinu. Íbúarnir mega áfram lifa á bónbjörgum, bíða eftir matarpökkum hjálparstofnana eins og 80% íbúanna gera og líða skort á flestum sviðum. Eyðileggingin á Gaza af völdum loftárása Ísraelshers og stórskotaárasa af sjó og landi er sögð ólýsanleg og kemur æ betur í ljós. Fréttamyndir sjónvarps og blaða gefa okkur nokkra mynd af þeim þúsundum íbúðabygginga sem hafa verið eyðilagðar og margar jafnaðar við jörðu. Þar koma líka jarðýtur hersins við sögu. Það eru fyrirtækin Caterpillar og Hyundai sem sjá Ísraelsher fyrir sérútbúnum vinnuvélum til að mölva hús og híbýli fólks og einnig til að eyðileggja aldingarða þar sem Gazabúar hafa um aldir og árþúsundir framleitt bestu sítrusávexti í heimi, ræktað ávaxtatré af öllum gerðum og framfleytt sér og sínum. Nærri hundrað þúsund manns hafa misst heimili sín og 50 þúsund manns voru að sögn í skýlum á vegum UNRWA, flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og lausn á þeirra húsnæðisvanda ekki í augsýn. Bandaríkjastjórn ber ábyrgðHundruð fullkomnustu orrustuflugvéla, árásarþyrlna, herbíla, sprengna og eldflauga koma frá Bandaríkjunum á lánum, sem hingað til hefur ekki tíðkast að greiða. Hvíti fosfórinn sem Ísraelsher hefur verið að varpa á íbúana á Gaza, brennir fólk, konur og börn, upp til agna, rétt eins og napalm. Fosfórsprengjurnar koma frá efnavopnaverksmiðju í Pine Bluff í Arkansas, ríki Clintons Bandaríkjaforseta. Þar hefur Bandaríkjaher framleitt efnavopn allt frá lokum síðustu heimsstyrjaldar. Bandaríkjastjórn ber ábyrgð á stríðsrekstri Ísraelsstjórnar. Hún tryggir Ísraelsríki fjármagn og vopnabúnað til að herja á nágranna sína og ver gerðir Ísraelsríkis í einu og öllu. Í raun virðist Ísraelsstjórn ráða atkvæði Bandaríkjanna í Öryggisráðinu í málum sem snerta Ísrael og hefur þar með neitunarvald sem hindrar alþjóðasamfélagið í að grípa inn í og stöðva stríðsglæpina. Það voru 1.315 íbúar á Gazasvæðinu sem létu lífið í 22 daga árás Ísraelshers og þar af var um þriðjungur, eða 410, börn sem herinn hefur myrt í þessu grimmdaræði gegn varnarlausu fólki. Um 5.500 manns hafa særst og margir mjög alvarlega. Sjúkrahúsin eiga mjög erfitt með að sinna hlutverki sínu vegna skorts á öllum sviðum og vegna þess hve fjöldi særðra er mikill. Þá hefur herinn ráðist á sjúkrahúsin, sextán sjúkrastofnanir hafa verið skemmdar og fjöldi sjúkraflutningamanna verið drepnir, einnig læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk. Burt með ÍsraelsherÞað eru því miður ekki efni til mikillar bjartsýni í friðarmálum. Það eina sem stendur samt upp úr er hin ótrúlega seigla Palestínumanna og raunsannur friðarvilji þessarar þjóðar, sem þrátt fyrir innri átök stendur sameinuð, þvert á alla flokka, um að ganga til friðarsamninga við þennan árásargjarna nágranna sinn, og stofna sjálfstætt, fullvalda ríki á Gaza og Vesturbakkanum með Austur-Jerúsalem sem höfuðborg. Þetta er grundvöllur sem jafnt Fatah, Hamas og aðrar stjórnmálahreyfingar standa á, og hann er í samræmi við ályktanir Öryggisráðs SÞ og alþjóðalög. Og þá verður aðskilnaðarmúrinn að hverfa í samræmi við úrskurð Alþjóðadómstólsins í Haag og landtökubyggðir gyðinga að fara undir palestínska stjórn og landráninu og hernáminu að linna. En fyrst af öllu verður Ísraelsher að hætta árásum á palestínsku þjóðina og verða á burt af öllu palestínsku landi. Stöðva verður fjöldamorð og stríðsglæpi. Félagið Ísland-Palestína hefur hafið neyðarsöfnun til kaupa á lyfjum og lækningatækjum fyrir sjúkrahús á Gaza og fer allt söfnunarfé óskert héðan til traustra ísraelskra mannréttindasamtaka lækna (PHR-I) sem koma aðstoðinni áleiðis. Stórefla þarf neyðaraðstoð til Gazasvæðisins. Reikningsnúmerið er 542-26-6990, kt. 520188-1349. Höfundur er læknir og formaður Félagsins Ísland-Palestína. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sveinn Rúnar Hauksson Mest lesið Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Á matur að vera ódýr? Sæmundur Jón Jónsson skrifar Skoðun Baráttan um Ísland Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þarf þolandinn alltaf að færa sig? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Er erfitt að taka ákvörðun? Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hugrekki til að breyta Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Ósýnileg stjórnarskrárákvæði Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson skrifar Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæði-til hvers ? Egill Þórir Einarsson skrifar Skoðun Er Ísland nógu gott fyrir Evrópu? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar Skoðun Umræðan í aðdraganda kosninga Geir Rögnvaldsson skrifar Skoðun Suðurlandi allt Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild skrifar Skoðun Nei við ESB er ekki nei við Evrópu Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Kjörklefinn er síðasti hlekkurinn, ekki sá fyrsti Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson skrifar Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar