Viðskipti innlent

Skilanefndirnar munu kosta 1,8 milljarð

Kostnaður við skilanefndir bankanna verður orðinn 1,8 milljarðar króna ef þær starfa í óbreyttri mynd næstu þrjú árin eins og gert er ráð fyrir að þær muni gera.

Greiðslur til skilanefnda viðskiptabankanna þriggja Glitnis, Kaupþings og Landsbankans námu 150 milljónum króna frá október til áramóta. Fimmtán manns sitja í skilanefndunum sem þýðir að hver maður hafi kostað 10 milljónir króna á þremur mánuðum eða 3,3 milljónir á mánuði.

Fjármálaeftirlitið gerði verktakasamninga við þau fyrirtæki sem skilanefndarmennirnir 15 starfa fyrir og er aðallega um að ræða endurskoðunarfyrirtæki og lögmannsstofur. Gera má ráð fyrir að þær ljúki störfum fyrr en eftir 2-3 ár.

Þegar fréttastofa bað um sundurliðum á reikningi vegna skilanefnda hjá viðskiptaráðuneytinu, sagði Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður Björgvins G. Sigurðssonar að viðskiptaráðherra væri ekki með málið á sinni könnu. Þó svo hann væri yfirmaður bankamála, væri málið hjá Fjármálaeftirlitinu. Hann sagði ekki búið að ákveða hvernig málum yrði háttað í framtíðinni, hvort skilanefndir myndu starfa í sömu mynd eða hver áætlaður kostnaður yrði í framtíðinni.

Upplýsingafulltrúi Fjármálaeftirlitsins vildi heldur ekki gefa fréttastofu upplýsingar um málið, sagði það trúnaðarmál.

Gera má ráð fyrir að kostnaður vegna skilanefnda verði eitthvað minni í framtíðinni en hann er nú en fari svo að skilanefndirnar ljúki störfum eftir þrjú ár eins og gert er ráð fyrir og kostnaður haldist sá sami, verður heildartalan komin í 1,8 milljarða króna að þremur árum liðnum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×