Viðskipti innlent

Skoða Árvakur og tónlistarhús

Tveir erlendir fjárfestar hafa gert tilboð í útgáfufélag Morgunblaðsins.
Tveir erlendir fjárfestar hafa gert tilboð í útgáfufélag Morgunblaðsins. Fréttablaðið/GVA

Ástralski fjárfestirinn Steve Cosser og hollenskur viðskiptafélagi hans, Everhard Vissers, hafa gert tilboð í Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins. Þeir hafa sömuleiðis sýnt áhuga á tilboði í tónlistar- og ráðstefnuhúsið við Reykjavíkurhöfn.

„Þeir sýndu málinu áhuga,“ segir Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar-TR, sem fer með málefni Tónlistar- og ráðstefnuhússins.

Stefán og fleiri viðmælendur Fréttablaðsins segja fjölda erlendra fjárfesta hafa fundað með fulltrúum banka og fyrirtækja hér um kaup á eignum. Fjárfestar sjái hér tækifæri til að fá eignir á hagstæðu verði eftir gengishrunið.

Ekki liggur fyrir um tilboð Cossers og Vissers í Árvakur en ekkert tilboð liggur á borðinu í tónlistarhúsið. Eftir því sem næst verður komist horfa þeir til fjárfestinga hér næstu fimm til tíu árin hið minnsta.

Skuldir Árvakurs nema 4,2 milljörðum króna og benda viðmælendur Fréttablaðsins á að Glitnir verði að afskrifa stóran hluta skulda félagsins gagnvart bankanum eigi það að verða áhugaverður fjárfestingarkostur.

Þór Sigfússon, stjórnarformaður Árvakurs, segir líklegast að tilboðsferli í Árvakur fari fram fyrir opnum tjöldum.

- jab






Fleiri fréttir

Sjá meira


×