Fjölmörg mál rannsökuð frá bankahruni 14. ágúst 2009 15:38 Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
Fjármálaeftirlitið hefur rannsakað fjölda mála frá bankahruni, tuttugu málum hefur verið vísað til embættis sérstaks saksóknara og einu máli hefur verið vísað til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra. Stjórnvaldssektir hafa verið lagðar á fimm aðila frá áramótum, allt frá einni milljón króna til tíu milljóna króna. Að endingu hefur Fjármálaeftirlitið lokið 40 málum á árinu með sáttargerð. Málum vísað til embættis sérstaks saksóknara Embætti sérstaks saksóknara er ætlað að rannsaka grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda og í tengslum við þá atburði er leiddu til setningar neyðarlaganna svonefndu í október síðastliðnum og eftir atvikum fylgja rannsókn eftir með útgáfu ákæru og saksókn. Embættið leysir af hólmi efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra, sem undir eðlilegum kringumstæðum fer með rannsókn sakamála á fjármálamarkaði. Um miðjan október 2008 hóf Fjármálaeftirlitið að rannsaka hvort brotið hefði verið gegn þeim lögum sem það hefur eftirlit með í aðdraganda og kjölfar hruns viðskiptabankanna þriggja. Meðal annars hafa verið til skoðunar viðskipti innherja með verðbréf, gjaldeyrisviðskipti, markaðssetning og fjárfestingar peningamarkaðssjóða, markaðsmisnotkun og verklag við lánveitingar. Fjármálaeftirlitið hefur nú vísað 20 málum til embættis sérstaks saksóknara. Fjármálaeftirlitið og embætti sérstaks saksóknara hafa með sér gott samstarf við rannsókn mála. Á árinu 2009 hefur Fjármálaeftirlitið vísað einu máli til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, auk þess sem Fjármálaeftirlitið og ríkislögreglustjóri hafa í samstarfi unnið að rannsókn annars máls.Fimm stjórnvaldssektir frá áramótum Reynslan sýnir að það hefur takmarkað gildi að refsing í formi sekta eða fangelsis liggi við brotum á fjármálamarkaði. Í framkvæmd er ekki unnt að taka öll slík brot til opinberrar rannsóknar og refsimeðferðar vegna fjölda þeirra og þess kostnaðar sem hlýst af rannsókn, ákæru og störfum dómstóla. Því hefur Fjármálaeftirlitið víðtækar heimildir til að beita stjórnvaldssektum. Fjármálaeftirlitið hefur lagt stjórnvaldssektir á fimm aðila frá áramótum. Sektirnar voru á bilinu 1.000.000 - 10.000.000 kr.Sáttir Mikill tími og fjármagn fer í að uppfylla kröfur stjórnsýsluréttarins um undirbúning og birtingu stjórnvaldsákvarðana. Á það jafnt við þó að ekki sé efnislegur ágreiningur á milli Fjármálaeftirlitsins og málsaðila. Fjármálaeftirlitinu er því heimilt að ljúka máli aðila með sátt hafi hann gerst brotlegur við ákvæði laga sem veita Fjármálaeftirlitinu heimild til beitingar stjórnvaldssekta. Heimild til sáttar nær þó ekki til meiriháttar brota sem refsiviðurlög liggja við. Fjármálaeftirlitið hefur lokið 40 málum á árinu með sáttargerð. Þar af eru 36 sáttir vegna þess að útgefendur verðbréfa sem tekin hafa verið til viðskipta á skipulögðum verðbréfamarkaði hafa ekki uppfyllt þá skyldu sína að upplýsa Fjármálaeftirlitið reglulega um innherja og tengda aðila.
Mest lesið „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Viðskipti innlent Stjarna í 66 ár, myndabikar, húmor í þeim gömlu og jólasveinakennsla Atvinnulíf Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes Viðskipti innlent Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Sá elsti í heiðurshópnum níutíu ára Atvinnulíf Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Viðskipti innlent Auglýstu tilboð of títt og fá milljón í sekt Neytendur Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Viðskipti innlent Brú Talent kaupir Geko Consulting Viðskipti innlent Ætlar að endurreisa Niceair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri „Verðum að vona að þessi þróun haldi áfram“ Kaffi Ó-le opið á ný Sjá meira