Makaskipti halda uppi fölsku verði á fasteignamarkaði 6. mars 2009 10:35
Makaskipti hafa færst verulega í aukanna en það er þegar fasteignir eru notaðar í skiptum fyrir hið keypta. Í slíkum viðskiptum er hinu eldra skipt upp í á yfirverði en þannig fæst hærra lán á hina keyptu eign. Greining Íslandsbanka fjallaði um málið í Morgunkorni sínu í gær en greiningin telur að makaskiptin haldi uppi fölsku verði á fasteignamarkaðinum. Makaskipti voru um 32% allra kaupsamninga í febrúar en 5% í sama mánuði í fyrra. Af þessu má draga þá ályktun að verð íbúðarhúsnæðis hafi lækkað meira en hinar opinberu tölur bera með sér. Nafnverð íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað um tæplega 4% frá hruni bankanna og um tæplega 6% á síðastliðnum tólf mánuðum. Þetta er viðlíka þróun og verið hefur á landinu öllu að meðaltali. Lækkunin er lítil m.v. að hagkerfið er að ganga í gegnum eina erfiðustu kreppu sem það hefur tekist á við. Atvinnuleysi er nú meira hér en áður hefur mælst og það á tímabili þar sem heimilin er skuldsettari en nokkru sinni fyrr. Heimilin þurfa að standa skil á háum greiðslum vegna afborgana og vaxta á sama tíma og ráðstöfunartekjur margra þeirra eru að dragast saman. Atvinnuleysið hefur aukist hratt hjá ungu fólki en þar eru skuldirnar líka hvað mestar. Eftir verðbóluna sem var á húsnæðismarkaði standa eftir margar óseldar íbúðir á sama tíma og þúsundir, aðallega erlendir verkamenn, hafa flutt af landi brott sökum efnahagsástandsins. Ástæða þess að nafnvert hefur ekki lækkað meira en raun ber vitni liggur meðal annars í því hversu óvirkur íbúðamarkaðurinn er um þessar mundir. Ekki skortir framboð íbúðarhúsnæðis en eftirspurnin hefur hrunið. Kaupmáttarþróun, atvinnuástandið, væntingar um húsnæðisverðsbreytingar, skortur á lánsfé ásamt fleiri þáttum ráða þar för.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira