Atvinnulífið fær greiðsluaðlögun og tímabundið afnám vaxta 23. mars 2009 10:03
Samkvæmt lögum um greiðsluaðlögun atvinnulífsins er gjalddögum aðflutningsgjalda og vörugjalda vegna uppgjörstímabila á árinu 2009 dreift á lengri tímabil. Gildistaka laganna er frá 15. mars til þess að ná yfir hefðbundinn gjalddaga aðflutningsgjalda, vegna tímabilsins janúar til febrúar 2009, sem var 15. mars. Í umfjöllun um málið í vefriti fjármálaráðuneytisins segir að um nokkurs konar greiðslufrest þessara gjalda sé að ræða en samkvæmt lögunum ber ekki að reikna vexti á meðan á hinum tímabundna greiðslufresti stendur. Að auki er kveðið á um í lögunum að þetta tímabundna fyrirkomulag hafi ekki áhrif á rétt fyrirtækja til innskatts á viðkomandi uppgjörstímabilum. Þann 18. mars varð að lögum frá Alþingi frumvarp fjármálaráðherra sem kveður á um tímabundna greiðsluaðlögun fyrir atvinnulífið. Með lögum þessum eru gerðar tímabundnar breytingar á tollalögum, lögum um vörugjald og lögum um virðisaukaskatt til að koma til móts við erfiðleika fyrirtækja í landinu við að standa skil á aðflutningsgjöldum og vörugjöldum á hefðbundnum gjalddögum. Þess má geta að greiðsludreifing aðflutningsgjalda af samskonar meiði var lögfest 17. nóvember 2008 en náði þá eingöngu yfir uppgjörstímabilið september til október 2008 og var með vaxtareikningi. Með hinum nýsamþykktu lögum er því gengið lengra þar sem greiðsludreifingin nær út árið 2009 og að auki er fallið frá vaxtaútreikningi á meðan að á greiðslufresti stendur. Eins og fram kemur í nefndaráliti efnahags- og skattanefndar með frumvarpi því sem varð að hinum nýsamþykktu lögum er þessi greiðsluaðlögun í samræmi við tillögur Samtaka iðnaðarins og Samtaka verslunar og þjónustu og ætla má að lögin verði til hagsbóta fyrir atvinnurekstur í landinu og auðveldi fyrirtækjum innflutning á vöru.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira