Áhyggjuefni hve áhugi fjárfesta á ríkisbréfum er lítill 23. mars 2009 12:10
Takmarkaður áhugi fjárfesta í útboði Seðlabankans á ríkisbréfum síðastliðinn föstudag hlýtur að vera stjórnvöldum nokkurt áhyggjuefni, sér í lagi í ljósi þess að útboðinu var m.a. ætlað að koma til móts við hluta af stórum gjalddaga innstæðubréfa í þessari viku. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að alls ráðgerði Seðlabankinn að taka tilboðum fyrir allt að 20 milljörðum kr. samanlagt í lengstu ríkisbréfaflokkunum þremur. Niðurstaðan varð hins vegar sú að aðeins bárust gild tilboð að upphæð ríflega 17 milljarða kr. og var tilboðum tekið fyrir rúma 13 milljarða kr. Lengsti ríkisbréfaflokkurinn , naut mestra vinsælda í útboðinu og var tilboðum fyrir rúma 7 milljarða kr. að nafnverði tekið á ávöxtunarkröfunni 8,84%. Ætla má að útlendingar hafi verið atkvæðalitlir í útboði föstudagsins þar sem þeir hafa sótt mest í stystu ríkisbréfaflokkana. Er það athyglisvert í ljósi þess að uppgjörsdagur þessa útboðs stenst á við gjalddaga innstæðubréfa Seðlabanka næstkomandi miðvikudag. Ekki verður mögulegt að kaupa ný innstæðubréf í stað allra þeirra bréfa sem eru á gjalddaga enda áætlað að bjóða út bréf fyrir 75 milljarða kr. í útboði sem fram fer í dag, en nú eru útistandandi u.þ.b. 123 milljarðar kr. sem falla á gjalddaga á miðvikudag.Raunar er rétt að benda á að öfugt við stóra gjalddaga á skuldabréfum með árlegar eða hálfsárslegar vaxtagreiðslur ættu ekki að verða mikil áhrif á krónuna af gjalddaga innstæðubréfanna þar sem vextir af þeim eru greiddir vikulega.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira