VBS fær lán hjá ríkissjóði til sjö ára upp á 26 milljarða 23. mars 2009 16:18
VBS fjárfestingarbanki hefur gengið frá samkomulagi við ríkissjóð um 26 milljarða lán til 7 ára vegna skuldbindinga bankans við Seðlabanka Íslands. Í tilkynningu segir að með samningnum sé tryggt að ríkissjóður og þar með skattgreiðendur, fái að fullu greitt skuldbindingar þær sem VBS fjárfestingarbanki tókst á hendur vegna endurhverfra viðskipta við Seðlabankann. Auk þessa mun samningurinn tryggja langtímafjármögnun á meginhluta skulda VBS fjárfestingarbanka, og þar með renna styrkum stoðum undir framtíð félagsins, hagsmuni viðskiptavina, hluthafa og starfsfólks. Jón Þórisson forstjóri VBS segir að með þessu láni sé bankinn kominn í var og geti haldið starfsemi sinni áfram óbreyttri. "Í stöðunni í dag eru mörg tækifæri til staðar fyrir þá sem eftir eru á markaðinum og við ætlum okkur að nýta þau," segir Jón. Lánasamningurinn inniheldur skilyrði um eiginfjár- og lausafjárstöðu auk annarra skilyrða og veitir hinu opinbera ríkari aðgengi að upplýsingum er varða rekstur og rekstrarhæfi bankans. Stefnt er að því að birta endurskoðaðan ársreikning VBS fjárfestingarbanka þann 31.mars næstkomandi.
Mest lesið Flugvirkjar fara í verkfall Viðskipti innlent Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Viðskipti innlent Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Viðskipti innlent Hafa samband við farþega Viðskipti innlent Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til Atvinnulíf Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Viðskipti innlent Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Viðskipti innlent Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Viðskipti innlent Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Viðskipti innlent Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Sjá meira